Ég á systur sem ég er mjög ánægður með í dag.
Eiginlega montinn yfir því sem henni tókst að valda.
Þó að hún hafi kannski ekki búist við því í upphafi að hún yrði völd að því að snjóbolti færi af stað sem endaði sem fjölmiðlaskriða.
Hún tók nefnilega eina ljósmynd af ístegundum þegar hún fór í verslunarferð eftir laugardagsnamminu og setti inn á Fésbókina sína með texta með:
Ætlaði ad kaupa ís fyrir krakkana og komst ad því að nú mega stelpur og strákar ekki lengur borða sama ís. Strákar eiga ad borða vanillu en stelpur jarðaberja!Ò já, þannig er sko Ísland í dag
![]()
Og ískaldur snjóboltinn úr frystinum rann af stað með þeim afleiðingum að viðkomandi ís frá Emmesís var tekinn út af markaðnum strax ólíkt iðnaðarsaltinu sem Ölgerðin, hafði flutt inn árum saman og selt til matvælaframleiðanda.
Enda fullt tilefni til vegna þess að umbúðir íssins voru fáránlegar þar sem kyngreind bannmerki voru sett á ísinn eftir bragðtegundum og að sjálfsögðu merkt upp með bleiku og bláu.
Líkt og matarsmekkur færi eftir kyni.
Og hvað þá þau fáránlegu skilaboð til barna að þeim sé bannað að borða eitthvað ákveðið þar sem það er strákalegt eða stelpulegt.
En já, máttur neytenda sem Íslendingar beita alltof sjaldan varð sýnilegur, þökk sé systur minni sem léet óánægju sína í ljós í stað þess að láta þetta pirra sig í hljóði.
En það var eitt sem vakti athygli mína líkt og oft áður.
Og það er umræðan í kringum þetta með öllum sínum misgáfulegu athugasemdum.
Við myndina sjálfa birtust yfir hundrað athugasemdir vegna dreifingar hennar um netið og við fréttir um þetta á DV sáust örugglega i kringum 100 athugasemdir og ekki enn lát á miðað við síðustu frétt.
Og þeim neikvæðu í garð systur minnar fyrir að finnast þetta fáránlegt og benda á þetta, mátti eiginlega skipta upp í þrjá hópa sem eru líkir að því að þeim fannst ekki eiga að gera athugasemd við svona hluti.
Sá fyrsti fór mikinn um og fannst þetta bara neikvætt tuð eða óttalegt væl út af engu sem reyndar skilaði þessum fjölda athugasemda, talaði um að hringja á vælubílinn sem mætti á svæðið og talaði einnig um að foreldrar ættu bara að segja börnunum sínum að vera ekkert að taka mark á þessum bannmerkjum sem er svo sem skoðun út af fyrir sig. Það reyndar skaut aðeins upp í kollinn á mér hvort það gæti reyndar ekki komið þeim skilaboðum til barna í leiðinni að bannmerki sé bara eitthvað sem eigi stundum að taka mark á.
Annar hópurinn sem sást í umræðunni talaði mikið um að fólk ætti frekar að eyða orku sinni í að vinna í stóru málunum: kynferðisbrotum, skuldastöðu heimilanna, stöðva styrjaldir og allt það í stað þess að vera að vekja athygli á einhverjum svona tittlingaskít í augum þeirra allavega. Málið er að það er helling af hlutum sem er að og ekki allir sammála um hvað það er og jafnvel þó þetta sé lítið í augum eins þá getur það verið stærra í augum annarra en ekki bara það.
Ef þú nefnilega nærð að vekja athygli á litlum hlut sem er í raun örlítið brot af stærra máli þannig að það hafi áhrif þá hefur þér tekist að stíga eitt skref áfram í stað þess að standa alltaf í sömu sporunum og öskra.
Síðan er það þriðji hópurinn sem sprettur trítilóður fram í hvert sinn sem rætt er um jafnréttismál, kynjamál og kynferðisbrotamál. Sá hópur froðufellir af bræði óháð hvort það sé almennt séð hófsamt eða öfgakennt innlegg inn í þessi eldfimu umræðuflokka frá einhverjum sem telur að betur megi gera í þessum málum. Þá fylgja miklar og ómálefnalegar formælingar með um „djöfulsins feministakjaftæði“, „rauðsokkuvæl“, „á ekkert að hlusta á þessar helvítis kellingar“ og ýmislegt sem flýtur með í ruddalegri kantinum sem ber hrenilega vott um djúpstæða kvenfyrirlitningu hjá viðkomandi.
En sá hópur vakti upp hjá mér ákveðna umhugsun sem hefur skotið svo sem upp áður.
Og það er þetta með að þessi hópur virðist oftast nær birtast þegar um er að ræða að KELLINGAR eða FEMINISTA tjá sig og þarf að ausa yfir að viðkomandi sé hitt og þetta níðrandi orð að vali í viðbrögðum sínum.
Viðbrögð sem eru á skjön við það þegar karlmenn tala eða koma með innlegg inn í þessi má að öllum jafnaði. Þá sést ekki mikið til þessa hóps heldur verður umræðan oftast nær hófstilltari að manni finnst og málefnalegri út frá þessu innleggi KARLMANNSINS nema þegar þessum hópi finnst nauðsyn að verja KARLMANNINN fyrir það sem þeir kalla ofsóknir FEMINISTA og KELLINGA s.s vegna nauðgunarmála eða gagnrýni á KELLINGA-samtök.
Besta dæmið sem ég man eftir um slíkt er t.d. umræðan um Þjóðhátíð í Eyjum og nauðganir. Í fyrra þá lét einn bæjarfulltrúi það út úr sér að hann vildi ekki sjá Stígamót á Þjóðhátíð út af einhverju yfir ergelsi frá síðustu öld.
Ýmsu fólki fannst illa vegið að Stígamótum en það var svoleiðis hellt úr skálum ruddalegra formælinga í garð allra þeirra sem dirfðust að gagnrýna þessa hátíð og viðbrögð bæjaryfirvalda og skipuleggjanda.
Og þó nokkuð af kynferðisbrotamálum komu upp í tengslum við þessa djammhátið þrátt fyrir alla gagnrýnina sem bæjaryfirvöld hlustuðu frekar lítið á að því virðist og pirruðu sig frekar á.
Fyrir helgi sendu svo 100 karlmenn bréf til opinberra aðila í Eyjum um hvort það yrði ekki reynt að stemma stígu við fjölda nauðgana sem væru mjög margar hlutfallslega séð á þessari einu hátíð. Þessir 100 menn uppskáru hlustun og kurteisisleg viðbrögð um að þetta yrði allt skoðað og reynt að bregðast við og á netinu sást eiginlega ósköp lítið eða varla nokkuð til þeirra sem tryllast þegar KELLINGAR tjá sig í þeim fáu athugasemdum sem settar voru inn á vef DV sem dæmi.
Karlmennirnir hafa kannski meiri vigt í svona málum heldur en konur að mati viðkomandi aðila.
En maður veltir því fyrir sér eftir lestur allra athugasemdanna af hverju fólki finnst það svo mikið mál að það missir sig í ómálefnalegheitum yfir því að kona tjái sig og lýsi skoðun sinni á því sem fer fyrir brjóstið á henni þegar kemur að staðalímyndum kynjanna og að það þurfi alltaf að vera að kyngera að stelpur, strákar, karlar og konur eigi að vera svona eða hisnegin með þessi eða önnur áhugamál eða smekk á hlutum.
Er það kannski fast í hlekkjum hugarfars um að allir eigi að vera eins og þær ímyndir sem otað er að okkur?
Eða er eitthvað annað sem veldur þessu?
Óháð hvort um ís eða jafnrétti er að ræða.




