Skilgreininingar úr Íslenskri veforðabók:
„brjóst|mylk|ingur -s, -ar KK
• brjóstabarn
–
brjósta•barn HK
• ungbarn sem enn er haft á brjósti
• brjóstmylkingur, brjóstbarn“
Mánudaginn síðastliðinn kallaði Bjarni Benediktsson Hallgrím Helgason rithöfund: Brjóstmylking útrásarinnar, í svargrein við umfjöllun þess síðarnefnda um Vafningsmál formannsins unga þar sem óþægilegar spurningar voru spurðar um þau mál án þess að formaðurinn svaraði þeim.
Eins og sjá má á orðaskilgreiningunum þá er Hallgrímur sagður hafa verið ungabarn sem hafi nærst á brjóstamjólk útrásarinnar og sé það enn ef sé miðað við þá skilgreiningu sem höfð er um brjóstabarn.
En hvað á Hallgrímur að hafa gert til að verðskulda að vera skilgreindur svo?
Hann á að hafa selt ómálað málverk til útrásarvíkinga fyrir hátt fé en eins og Egill Helgason bendir á og leiðréttir þá fór sá aur allur til UNICEF en verkið sem var málað fékk þann titil Guð á Sæbrautinni.
Hvað annað gæti verðskuldað þessa skilgreinningu?
Og það er eiginlega fátt sem ég man eftir.
Hallgrímur Helgason skrifaði greinar einstaka sinnum í blöðin þar sem hann gagnrýndi m.a. Davíð og Sjálfstæðisflokkinn.
Sú frægasta var Baugur og Bláa höndin sem rituð var í Morgunblaðinu 2002 þar sem hann skrifaði um að Davíð og Sjálfstæðisflokkurin væru að nota vald sitt til að ofsækja Baugsmenn.
Og uppskar þær úthrópanir að hann væri Baugspenni í landi þar sem fólki var skipt í tvo hópa af skrímsladeild Valhallar: Sjálfstæðismenn og svo Baugs-menn.
En Hallgrímur var kallaður á teppið af Davíð sjálfum fyrir þetta og ef manni minnir rétt þá kom það upp úr krafsinu síðar meir að forsætisráðherrann hafi hótað að ef hann hagaði sér ekki þá yrði séð til þess að náinn ættingi hans myndi missa vinnuna í hegningarskyni.
Og ef það sé sökin að hafa gagnrýnt Davíð og framferði harðlínuafla hans í Baugsmálinu sem gekk einfaldlega út á að tvær glæpaklíkur kljáðust vegna þess að önnur var ekki þæg í taumi, þá eru bróðurpartur þjóðarinnar í dag brjóstmylkingar útrásarinnar.
Hvað þá að hafa látið blekkjast af þeim líkt og öðrum þeim útrásarvíkingum sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði undir verndarvæng „innvígðra og innmúraðra“:
En ef þetta nægir til þess að vera kallaður brjóstmylkingur útrásarinnar, hvað þá með Bjarna Benediktsson sjálfan?
- Hann og ættingjar hans áttu hluti í Glitni og höfðu greiðan aðgang að mönnum þar sem þeir ástunduðu viðskipti með.
- Stjórnarformðaur í fyrirtækinu BNT sem átti í útrásarbankanum Glitnir stóran hlut fyrir 2007 og svo um 6-7% eftir 2007.
- Sama fyrirtæki var einn af stærri skuldurum bankans auk N1 sem Bjarni var einnig í stjórnarformennsku fyrir.
- Kom nálægt vafasömum fjármálagjörningi kenndum við Vafning sem mun kosta ríkissjóð og þar með almenning um sjö milljarða króna.
- Flaug með einkaþotu Glitnis til Skotlands í golfferð auk ýmisra viðskiptamanna
- Yfirmaður hjá Glitni var kosningastjóri hans.
- Hefur hugmyndafræðilegar skoðanir með Viðskiptaráði, móðir allrar útrásar.
Og Sjálfstæðisflokkurinn.
Hvað má þá kalla hann?
- Þingmenn hans þáðu tugmilljónir frá útrásarvíkingum og fyrirtækjum.
- Flokkurinn sjálfur fékk tugmilljónir í skyndistyrk í kringum jólin 2006 þegar verið var að fjalla um einkavæðingu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja.
- Flokkurinn veikti allt eftirlit og tryggði auðmönnum ívilnanir sem gáfu þeim færi á að koma enn meira fé úr landi eða framhjá skattayfirvöldum.
- Flokkurinn reyndi hvað hann gat til þess að tryggja hag auðmanna og útrásarmanna þegar það byrjaði að harðna á dalinn án þess að huga að hag grunlaus almennings sem situr uppi með tjónið.
Og þetta eru aðeins gróf dæmi af fjölmörgum ítarlegri sem fjallað er um í skýrslu RNA.
Sem FL-okkurinn, Bjarni og útrásin afneitar nú sem sannleik heldur djöflast nú gegn því að hér eigi sér af stað uppgjör við Hrunið fyrir framan dómstóla sem og í samfélaginu.
Maður getur því ekki annað sagt en að þessi orð Bjarna um brjóstmylkinga útrásarinnar, hitti hann, Sjálfstæðismenn og Sjálfstæðisflokkinn fyrir all harkalega í hausinn líkt og búmmerang.
Því ef einhverjir voru brjóstmylkingar útrásarinnar þá voru það fyrst og fremst þeir sem framfylgdu þeirri hugmyndafræðilegu stefnu sem Davíð Oddson hannaði og leiddi okkur fram af hengiflugi meðan þeir bergðu græðgislega á kjörum, kúlulánum og styrkjamjólk sem aðeins útvöldum bauðst.
Og Bjarni sjálfur, hvað með hann í dag?
Hann er kannski ekki brjóstmylkingur útrásar lengur.
Heldur allt annað.
Erfðaprins Hrunsins.



