Stjórnborð

AK-72

Þarf meiri- og minnihluta í Kópavogi?

February 2, 2012 · Engin athugasemd

Það flaug upp í kollinn á mér hvort það sé einhver þörf á meiri- og minnihluta í Kópavogi.

Eða yfirleitt í nokkrum sveitarfélögum

Flest mál í sveitarfélögum eru eiginlega engin ósátt um þannig séð.

Og yfirleitt helst smáatriði í útfærslum sem fólk er kannski að deila um.

Helst kannski að útsvar og framkvæmdir standi í fólki og valdi deilum frekar en mál á borð við að gera betur við leikskólakennara.

Það er þó eitthvað sem fólk ætti að geta rætt sig niður á niðurstöðu sem viðtæk sátt er um, þegar bæjarstjórnarfundir eru haldnir ef það hefur raunverulegan áhuga á að vinna bæjarfélagi sínu gagn.

Sérstaklega ef ópólitískur bæjarstjóri sér um framkvæmdahlðina og daglegan rekstur og bæjarfulltrúarnir leggja fótboltaliðsgallann til hliðar.

Í stað þess að skipta þessu upp í liðakeppni þar sem fótboltalið meiri- og minnihlutalið kljást og reyna að skora í hvert sinn sem blásið er til leiks á bæjarstjórnarfundi.

Með tilheyrandi æsta áhangendur öskrandi og gargandi yfir því að dómarnin sé hitt og þetta eða að þessi hafi svikið sitt fótboltalið með því að ganga til liðs við hitt liðið með svikabrigslum.

Nokkurskonar Breiðablik vs. HK.

Var ekki annars eitthvað verið að tala um breytt stjórnmál?

  • Facebook
  • Twitter

Use Facebook to Comment on this Post

Flokkar: Stjórnmál