Stjórnborð

AK-72

Boðs- og kynnisferðir lífeyrissjóðanna

February 5, 2012 · Engin athugasemd

Það hefur aðeins verið rætt um boðsferðir lífeyrissjóða í tengslum við skýrslu um sjóðina.

Og svo sem ekki í fyrsta sinn frá Hruni.

Það má því eitthvað af upplýsingum um slíkar ferðir og kynnisferðir sem helsti munur virðist vera á hversu mikið af kostnaði sjóðirnir axla af þeim sjálfir.

Og manni grunar að allavega í einhverjum tilfellum sé engin munur, bara orðaleikur.

En hér má líta yfirlit yfir nokkrar slíkar ferðir samkvæmt þeim upplýsingum sem sjóðirnir hafa sjálfir gefið upp í tengslum við það þegar umræðan kom fram árið 2009:

  • Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs fór í eina boðsferð á vegum Glitnis til Moskvu árið 2007. Eftirtektarvert er að viðkomandi tekur það skýrt að veiðiferðum hafi verið hafnað en jólagjafir þegnar.
  • Lífeyrissjóður Vestmanneyja þáði engar ferðir eða gjafir.
  • Lífeyrissjóður bænda sendi einn mann í boðsferð til Moskvu á vegum Glitnis árið 2007.
  • Lífeyrissjóðurinn Stafir gaf það út að starfsmenn þess hefðu farið í átta ferðir þar af eina innanlands, á árunum 2006 og 2008. Framkvæmdastjórinn þáði eina laxveiðiferð fyrir setningu siðareglna og tvær mismunandi ferðir eftir gildistöku siðareglna. Sjóðurinn virðist hafa borgað ferðirnar en svo gestgjafar yfirleitt gistingu og uppihald samkvæmt því sem framkvæmdastjórinn segir.
  • Lífeyrissjóðurinn Stapi gaf frá sér ítarlega yfirlýsingu þar sem farið var ofan í saumana á ferðum. Árið 2005 fóru starfsmenn 7 sinnum erlendis en aðeins ein af þeim ferðum flokkast undir boðsferð og var hún á vegum islensks banka. Næsta ár var það sama upp á teninginn, 6 ferðir greiddar af sjóðnum en ein boðsferð á vegum banka. Árið 2007 var fimm sínnum farið út í vinnuferðir en þrjár boðsferðir svo þáðar af bönkum. Árið 2008 var svo farið fimm sinnum út í vinnuferðir og svo tvisvar í boðsferð til banka. Engir stjórnarmenn fóru í þessar boðsferðir, eingöngu starfsmenn.
  • Sameinaði lífeyrissjóðurinn segir í svari til VM að eingöngu hafi verið farnar vinnu- og kynnisferðir af hálfu starfsmanna og um helmingur þeirra verið kostaðar af samstarfsaðilum fyrir utan að framkvæmdastjóri og forstöðumaður eignastýringasviðs hafi þegið laxveiði án íburðar einu sinni á ári..
  • Almenni lífeyrissjóðurinn er lítt hægt að finna um nema að framkvæmdastjóri sjóðsins ásamt tveimur stjórnarmönnum fór til Moskvu í boði Glitnis og væntanlega sömu ferð og fleiri lífeyrissjóðsmenn voru í.

Það má örugglega finna fleiri dæmi um minni sjóðina en hér að neðan eru svo upplýsingarnar um þrjá stærstu sjóðina sem standa að baki 54% taps allra lífeyrissjóðanna:

  • Lífeyrissjóður Verslunarmanna gaf út árið 2009 yfirlýsingu vegna fréttaumfjöllunar þar sem sagt var að starfsmenn eignastýringar hefðu farið 14 sinnum í kynnisferðir og forstjóri þar með átta sinnum á tímablinu 2005-2008 og forstjóri sagður hafa þegið laxveiði 1-2 sinnum á árí í undantekningartilfellum. Í yfirlýsingunni má einnig sjá dæmi um hvejrir buðu: Actavis, FL Group, Icelandair, Marel, Bakkavör og Avion. Reyndar er athyglisvert að sjá að forsvarsmenn sjóðsins hafi skrifað stuttu eftir Hrun, umað þeir hafi engar boðsferðir þegið heldur hafi FL Group hótað þeim og Bjarni Ármannsson viljað losna við LV úr bankanum vegna aðhalds.
  • Lífeyrissjóður Ríkisstarfsmanna sagði í svari til DV í apríl 2008 að enginn hefði þegið boðsferðir hjá sjóðnum og reglur giltu um ferðalög og gjafir til starfsmanna. Í úttekt DV frá 23. janúar 2012 kemur fram að svo er ekki raunin heldur hafi starfsmenn farið í 30 boðsferðir m.a. í boði Straums og Landsbankans. Eftir útkomu skýrslu um lífeyrissjóði fyrir helgi þá lét Hrafn Bragason, formaður úttektarnefndar Landsambands Lífeyrissjóða, þau orð falla að hlutabréfakaup stuttu eftir boðsferð Straums væru óeðlleg.
  • Lífeyrissjóðurinn Gildi sendi frá sér yfirlýisngu vegna fréttar í Fréttablaðinu árið 2009 þar sem kom fram að æðstu stjórnendur Gildis hefðu samtals farið í 35 boðsferðir. Í henni segir að um fjóra starfsmenn sjóðsins hafi verið að ræða: framkvæmdastjóra og þrjá starfsmenn eignastýringar, sem fóru til að kynna sér fjárfestingarkosti og starfsemi fyrirtækja sem sjóðurinn var hluthafi í. Helmingur þessara ferða voru kynnisferðir kostaðar af öðrum og aðeins var farið í ferðir með þekkingaröflun að leiðarljósi samkvæmt yfirlýsingu sjóðsins.
  • Vert er að benda á eftirfarandi klásúlu úr bókinni Íslenska efnahagsundrið sem fjallar um þessa þrjá lífeyrissjóði og boðsferðir sem minnst var á í fréttá sínum tíma:“A.m.k. þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins verða að flokkast undir vinahóp Kaupþings ef litið er á viðskiptasamband þeirra og Kaupþings. Þeir keyptu stöðugt hlutabréf bankans og áttu viðskipti fyrir hundruð milljóna á ári. Sjóðina eiga jú sjóðsfélagarnir en fæstir þeirra fengu þó verðmætar jólagjafir eða þáðu boðsferðir af Kaupþingi. Það gerðu hins vegar starfsmenn í eignastýringu lífeyrissjóðanna, t.d. þeir Guðmundur Þ. Þórhallsson og Þorgeir Eyjólfsson hjá VR, Baldur Vilhjálmsson og Haukur Hafsteinsson hjá LSR og þeir Árni Guðmundsson og Tryggvi Tryggvason hjá Gildi. Það sama gerðu margir af starfsmönnum minni sjóðanna.”

Einnig er vert að benda á nokkrar fréttir í framhaldi þar sem ekki kemur endilega fram um hvaða sjóði er að ræða:

  • Í frétt DV frá því í október 2009 er sagt frá tvísaga forstjóra Íslenskra verðbréfa sem sagði að enginn lífeyrissjóðsmaður hefði farið í boðsferðir. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Verkfræðinga sagðist hafa þegið eina slíka í Ytri Rangá ásamt öðrum starfsmanni og í fréttinni kemur fram að fleiri lífeyrissjóðsstarfsmenn hafi farið í slíkar boðsferðir áður í samtali við DV.
  • Í pistli sem Sölvi Tryggvason birti á Pressunni þá kemur fram að starfsmenn lífeyrissjóða hafi þegið fjöldann allan af boðs- og lúxusferðum frá bönkum og öðrum. Tekið er dæmi um einn ónefndan starfsmann lífeyrissjóðs sem hafi farið í 14 boðsferðir á vegum Kaupþings eitt árið.
  • Núna á síðasta ári þá voru haldnir einkatónleikar með Hjálmari á vegum fyrirtækisins HF Verðbréf fyrir útvalda starfsmenn fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða samkvæmt frétt Pressunar.
  • Þegar Morgunblaðið fjallaði um boðsferðir lífeyrissjóðanna fyrri hluta árs 2009 þá sá Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og stjórnarmaður í lífeyrissjóðinni Gildi, sig knúinn til að gefa út yfirlýsingu fyrir hönd SA þar sem m.a. er birtur listi yfir nöfn allra stjórnarmanna SA í lífeyrissjóðum, þar sem hann vísar öllu slíku á bug með eftirfarandi orðum:“Ófaglegar ásakanir á stjórnarmenn lífeyrissjóðaAnnað atriði sem fjallað er um í grein Agnesar í Morgunblaðinu sl. sunnudag verður að flokka sem róg meðan hún sannar ekki mál sitt. Samtök atvinnulífsins vilja ekki sitja undir því að stjórnarmenn sem þau tilnefna hafi látið ginna sig til vonlausra og óarðbærra fjárfestinga með því að þiggja boðsferðir á vegum banka og fjárfestingarfélaga, bergja á lúxus, sitja í heiðursstúkum á knattspyrnuvöllum heimsliðanna, sigla á lúxussnekkjum og leika sér í einkaþotum og þyrlum stóru strákanna.”
  • Landssamband lífeyrissjóða sá einnig tilefni til að gefa út yfirlýsingu út af fréttaflutningi Morgunblaðsinsog sagði m.a. þetta um boðsferðir:“Í fréttinni er fjallað um boðsferðir fjármálafyrirtækja sem sagt er að stjórnendur  lífeyrissjóðanna hafi tekið þátt í.  Þar er vísað til þess að stjórnendur lífeyrissjóða hafi þegið boð fjármálafyrirtækja um laxveiði í Rússlandi, á  knattspyrnuleik í Aþenu, boð á Formúlu 1,  í golf- og skíðaferðir og ýmis konar siglingar erlendis. Forsvarsmenn Landssamtaka lífeyrissjóða höfðu að þessu tilefni samband við stjórnendur nítján stærstu lífeyrissjóðanna, sem fara með yfir 93% heildareigna lífeyrissjóða landsmanna. Í ljós kom að enginn starfsmaður eða stjórnarmaður þessara lífeyrissjóða hafi verið í umræddum ferðum, með þeirri undantekningu að  fulltrúi eins lífeyrissjóðs var í einni ferðinni.”

Að lokum er þess virði að rifja upp fræga laxveiðiferð til Rússlands sem minnst er á hér að framan, á vegum Glitnis sem einhverss staðar var sagt að hefði kostað tugi milljóna og fullyrt að jafnvel að kostnaðurinn hefði hlaupið a fimmta hundrað milljóna vegna óhóflegs sukks. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Gísli Marteinn Baldvinsson, var fenginn til þess að vera veislustjóri og ræðumaður í hópi 60-80 viðskiptavina Glitnis sem átti m.a. að fá til að setja fé í hinn illræmda Sjóð 9 sem Illugi Gunnarsson þingmaður sat í stjórn hjá, og ríkistjórn Geirs H. Haarde setti 11 milljarða í stuttu eftir Hrun. Sá sjóður er reyndar víst til skoðunar hjá sérstökum saksóknara ef mig minnir rétt.

Stóra spurningin með þá ferð er:

Hverjir voru með?

Og voru þar einhverjir fulltrúa lífeyrissjóða eða menn sem sátu einnig í stjórnum þeirra þar á meðal?

  • Facebook
  • Twitter

Use Facebook to Comment on this Post

Flokkar: Fjármál · Glæpir og rannsóknir · Hitt og þetta · Hrunið