Þegar Bjarni Benediktsson var spurður nýverið út í sölu hlutabréfa sinna í Glitni um svipað leyti og hann tók þátt í Vafningnum fræga og skömmu eftir krísufund í Seðlabankanum 7. febrúar 2008 þá var svar hans svona:
„Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið ætti að vera ljóst hver fráleitar þær aðdróttanir eru að einhvers konar trúnaðarupplýsingar hafi haft áhrif á þá ákvörðun mín að selja hlutabréf í Glitni í umræddum mánuði. Þar lá ekkert annað að baki en það sem við öllum blasti og ég ræddi opinskátt við hvern sem heyra vildi,“
Hlutabréfin í Glitni seldi Bjarni í febrúar 2008 auk þess sem faðir hans losaði sig einnig við hlutabréf sín um svipað leyti.
Í mars 2008 lánuðu 13 lífeyrissjóðir Glitni 11 milljarða með vægast sagt frekar lélegum veðum og hafa nú höfðað mál gegn slitastjórn Glitnis á grundvelli þess að bankinn hafi blekkt þá og veitt þeim rangar upplýsingar um eiginfjárstöðu, lausafjárstöðu og stærstu áhættuskuldbindingarnar.
„Það sem við öllum blasti“
Einmitt.



