Stjórnborð

AK-72

Ekki flókinn samningur og of flókið stjórnarskrárfrumvarp

February 21, 2012 · Engin athugasemd

Það er eitt óskiljanlegt.

Eftir að íslenska þjóðin hefur þurft að ganga í gegnum tvær þjóðaratkvæðagreiðslur um flókna miilliríkjasamninga þar sem hún fékk það í hendurnar að kynna sér samninginn sjálfan, lesa hundruðir blaðsíðna af álitsgerðum um viðkomandi samning, fjöldann allan af blaðagreinum um hugsanlegar afleiðingar samþykkis eða höfnunar, lögfræðiálit innlendra sem erlendra auk þess að sett voru fram ýmis rök í opinni umræðu um viðkomandi samning í útvarpi sem sjónvarpi þá skuli stíga fram fólk og segja á þessa leið:

„Frumvarpið að nýrri stjórnarskrá er of flókið fyrir þjóðina til að kjósa um.“

Og það eftir að þúsund manns lögðu á plóginn á þjóðfundi um mótun nýrrar stjórnarskrár, nefnd vann úr þeim niðursötðum og 25 manna stjórnlagaráð fullmótaði svo frumvarp sem lagt var fyrir Alþingi.

Og það sagt jafnvel af fólki sem sagði að þjóðinni væri best treystandi til að taka afstöðu til fyrrgreindra samninga.

Sem þykir greinlega ekki lengur nógu gáfuð til að mynda sér skoðun á t.d. framtíðarréttindum sínum, skiptingu kjördæma, skipulagi stjórnkerfisins og hvort þjóðin eigi að hafa yfirráð yfir sínum auðlindum.

Hvað er svo miklu flóknara við það heldur en fyrrgreindan samning?

  • Facebook
  • Twitter

Use Facebook to Comment on this Post

Flokkar: Stjórnmál