Það er augljóst að það er komin nýr meirihluti í Kópavogi. Breyting á áherslum leyna sér ekki. Sá vinstri meirihluti sem var alltof stutt í meirihluta lagði áherslu á að verja skattfé bæjarbúa til þess að halda úti starfsemi skólanna, leikskólanna og þeirri grunnþjónustu sem bæjarfélag á að sinna. Meirihluti Gunnars Birgissonar hefur allt aðra sýn á það hvað eigi að gera við útsvarið og fasteignagjöldin sem við bæjarbúar borgum um hver mánaðarmót í bæjarsjóð. Þeir hafa sett í forgang að reisa hundagarð. Ekki það að ég hafi nokkuð á móti hundum eða öðrum dýrum, þvert á móti. Það þykir semsagt algjört forgangsmál að reisa hundagarð í Kópavogi, ég er nú reyndar hissa á því að nafnið sé svo látlaust eins og raun ber vitni. Í Kópavogi var málum þannig háttað að það áttu að rísa akademíur út um allt. Hestaakademía, fótboltaakademía, Óperuakademía( svona eitt stykki Harpa ). Þá finnst mér skrítið að aðeins eigi að reisa hundagarð en ekki hundaakademíugarð. Þá spyr maður hvað við fáum að sjá næst? Kannski dettur þeim í huga að byggja Stórskipahöfn.


