Lilja, Lilja, Guðfríður Lilja!
Ég sá það í Mogganum rétt í þessu að þú ætlaðir að styðja tillögu Sjálfstæðisflokksins um að vísa máli Geirs H. Haarde frá Landsdómi. Þetta var haft eftir þér. Innan gæsalappa. Eigi að síður á ég bágt með að trúa þessu.
Ég get hins vegar trúað því að þú hafir samúð með Geir einum á sakamannabekknum. Það hef ég líka. Samt vil ég halda málinu fram því að málaferlin gegn Geir eru miklu meira en málaferli gegn fyrrverandi forsætisráðherra. Þetta er rannsókn á því hvernig frjálshyggjan lagði efnahag landsmanna í rúst. Þetta er rannsókn á því hvað menn gerðu rangt, rannsókn á því hverjir gerðu rangt, rannsókn á því hvers vegna menn höguðu sér oft á tíðum eins og þeir væru meðvitundalausir. Þetta er partur af því að “fá allt upp á borðið” eins og þið segið svo mörg, svo oft. Í goðana bænum gleymdu því ekki því þá værirðu farin að berjast við sjálfa þig, greiða atkvæði á móti sjálfri þér, eins og hver annar léttvægur þingmaður.
Auðvitað varstu kosin á þing með samvisku þína innan rifja. Það kann að vera hún sem knýr þig til þess að fara svona með atkvæði þitt. En samviska rúmast varla í einni skúffu aðeins. Þá væri lítið gagn í henni. Hvað með samviskuna gagnvart félögum þínum sem unnu baki brotnu að kjöri þínu, grasrótina, sem ég hef heyrt þig tala svo fallega um? Hefurðu talað við hana? Hefurðu spurt hana ráða? Hefurðu haldið fund um þetta með kjósendum þínum í Kópavogi, Mosfellsbæ, Álftanesi, Garðabæ eða Hafnarfirði? Á einhverjum staðnum eða öllum? Hvernig voru undirtektir? Hefurðu ekki skyldur gagnvart þessu fólki? Ertu að gefa frat í það? Ætlarðu eð leggjast gegn því að eitt mesta hryðjuverk Íslandssögunnar verði upplýst? Ertu að yfirgefa okkur, félaga þína, til þess að takast megi að halda sögunni leyndri? Ertu að gefa skít í mig? Það þætti mér leitt. Ekki gera það!
Það er þannig, félagi Lilja, að það nægir ekki að það séu bara sum mál höfð “uppi á borðum.” Vilji maður vera sjálfum sér samkvæmur við borðhaldið þurfa öll mál að leggjast þar upp á.
