Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni hefur ekki tekist að auka fylgi framsóknarflokksins. Þvert á móti er flokkurinn heldur á undanhaldi og virðist ekki ætla að ná sér á strik þrátt fyrir þessa voðalegu ríkisstjórn sem nú situr að mati formannsins. Ég velti því fyrir mér hvort formaðurinn og forusta flokksins reyndar öll, hafi í raun metnað til [...]
Minnkandi atvinnuleysi
Björn Valur Gíslason - May 15, 2012 - 1 athugasemd
Á vef Vinnumálastofnunnar má sjá að atvinnuleysi hér á landi mælist 6,5% í apríl sl. og hefur lækkað um 0,6 prósentustig á milli mánaða. 6,5% er of há tala. Um það verður ekki deilt. Þó er þetta minnsta atvinnuleysi frá Hruni og það minnsta sem mælist á norðurlöndum að Noregi undanskildu. Samkvæmt upplýsingum OECD mældist [...]
Jarðgöng eða dauði!
Björn Valur Gíslason - May 12, 2012 - 5 athugasemdir
Oddskarðsgöng sem eru 640 metra löng, voru opnuð árið 1977, fyrir 35 árum. Þau hafa án efa þótt góð samgöngubót á sínum tíma. Oddskarðsgöng eru hinsvegar barn síns tíma og það er skammarlegt að ekki hafi verið ráðist í vegabætur í þeirra stað fyrir lifandi löngu. Það hefði verið upplagt að leggja af stað í [...]
Pörun á kærleiksheimilinu
Björn Valur Gíslason - May 11, 2012 - 3 athugasemdir
Pörun er algeng á Alþingi. Sérstaklega er þó algengt að parað sé út. Sem þýðir að stjórnarandstaða og stjórnarliðar hverju sinni sjá til þess að hið pólitíska hlutfalla haldi sér í atkvæðagreiðslum þó forföll verði í öðru hvoru liðinu. Þannig sjá þingmenn til þess að verja lýðræðislega niðurstöðu kosninga um valdahlutföllin á þinginu. Þannig nýtur [...]
Málþófið tapaðist
Björn Valur Gíslason - May 11, 2012 - 2 athugasemdir
Málþóf er það kallað þegar þingmenn reyna að hindra framgang mála á þingi. Það eru til ýmsar útgáfur af málþófi. Ein útgáfan er að draga umræður um það mál sem þingmenn vilja koma í veg fyrir að nái fram á langinn með ræðuhöldum þangað til að flytjendur þess gefast upp á umræðunum og draga málið [...]
Hvað vilja Framsóknarmenn þá?
Björn Valur Gíslason - May 8, 2012 - 9 athugasemdir
Framsóknarmenn virðast hafa lagt í talsverða vinnu við að átta sig á stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum eins og hún var samþykkt á flokksþingi Framsóknarflokksins vorið 2011. Niðurstaða þeirra er sú að Framsóknarflokkurinn í dag sé allt annarra skoðunar en Framsóknarflokkurinn var í fyrra og algjörlega á allt annarrar skoðun en stjórnarflokkarnir samkvæmt því sem sjá [...]
Febrúar 2008
Björn Valur Gíslason - May 7, 2012 - 11 athugasemdir
Febrúar 2008 virðist hafa verið afar átakamikill mánuður í sögu þessa lands. Í þeim mánuði voru teknar margrar afdrifaríkar ákvarðanir sem haft hafa gríðarleg áhrif á lífskjör okkar allra. Þó voru áhrifin ekki neikvæð fyrir alla eins og gengur og gerist. Í dómi Landsdóms yfir Geir H Haarde er ítarlega sagt frá gangi mála í [...]
Aparnir á Alþingi og hinir þingmennirnir
Björn Valur Gíslason - May 5, 2012 - 5 athugasemdir
Það hefur ekki verið mikill sómi af störfum þingsins undanfarna daga. Stjórnarandstaðan hefur bætt tólum í vopnabúr sitt, ætluðum að koma í veg fyrir öll mál ríkisstjórnarinnar. Áður höfðu þau þróað hin mjög svo uppbyggilegu sýndarandsvör sem felast í því að þingmenn úr sama þingflokki nota ræðustól þingsins til að spyrja hvern annan hvað þeim [...]
Þingskömm
Björn Valur Gíslason - May 4, 2012 - 7 athugasemdir
Hluti stjórnarandstöðunnar hefur tekið Alþingi í gíslingu með ótrúlega ósvífnu málþófi. Undir tryggri og öruggri forystu sjálfstæðisflokksins sem berst af hörku gegn öllum breytingum á því stjórnkerfi sem til varð undir hans stjórn, hefur tekist að koma í veg fyrir að brýn mál fái þinglega meðferð. Sem dæmi um slík mál má nefna niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði, atvinnutengda starfsendurhæfingu, [...]
Hrikleg staða sjávarútvegsfyrirtækja
Björn Valur Gíslason - May 3, 2012 - 12 athugasemdir
Daði Már Kristófersson og Stefán Gunnlaugsson hafa nú skilað atvinnuveganefnd þingsins skýrslu um áhrif frumvarpa um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Í skýrslunni fara þeir yfir stöðu 23 stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins og 12 fyrirtækja í krókaflamarkskerfinu. Niðurstöðurnar eru sláandi. Samkvæmt niðurstöðu þeirra mun fimmtungur af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins aldrei geta staðið undir skuldum sínum og litlu [...]


