Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins spyr sjálfan sig að því í hvaða veröld forsætisráðherra landsins búi. Hann segist ekki sjá að það standi yfir einhverskonar barátta um Ísland og skilur ekkert í þeim sem halda slíku fram. Biður um dæmi.
Hvað með baráttu sjálfstæðismanna við afturköllun málsóknar á hendur fyrrverandi formanni flokksins?
Hvað með linnulausan áróður harðasta baklands sjálfstæðisflokksins, Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs gegn ríkisstjórninni?
Hvað með brjálæðislegan málflutning hægriaflanna í landinu gegn breytingum á skattkerfinu í réttlætisátt?
Hvað með baráttuna um yfirráð yfir auðlindum landsins?
Hvað með gamla blaðið sem Styrmir reyndi að gera að blaði allra landsmanna en er nú aftur orðið að hreinu málgagni sjálfstæðisflokksins undir forystu fyrrum forystumanns Flokksins?
Það er af nógu af taka ef menn vilja fara út í það.
En í hvaða veröld bjó téður Styrmir? Sjálfur lýsir hann sínum gamla heimi með þessum hætti í 8. bindi Rannsóknarskýrslu Alþings (bls. 179):
„Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta“
Um þetta stendur baráttan. Baráttan stendur annarsvegar um nýtt Ísland eða afturhvarf til gamla ógeðslega þjóðfélags tækifærismennsku og valdabaráttu sem Styrmir lýsir svo vel og hann tók sjálfur virkan þátt í að skapa á sínum tíma enda talin vera einn áhrifa mesti tasmaður Flokksins í 50 ár.
Hver vill hverfa aftur til þeirra tíma?
Ógeðslegt þjóðfélag …
Björn Valur Gíslason - January 30, 2012 - 4 athugasemdir

