Formaður sjálfstæðisflokksins gerði í dag fullkomlega misheppnaða tilraun til þess að fara með rétt mál um þróun eldsneytisverð og hlut ríkissjóðs í þeim efnum. Formaðurinn hélt því fram að ríkið hefði aldrei tekið annað eins í sinn hlut af verði eldsneytis án þess þó að rökstyðja það með neinum hætti.
Þegar betur er að gáð er hefur ríkissjóður aldrei áður tekið jafn lítinn hluta af útsölu verði á bensíni og olíu til sín og einmitt í dag eins og sjá má á línuritinu hér að ofan.
Á þeim tímum fóru nærri tvær af hverjum þrem kónum af seldum bensínlítra færi í ríkissjóð og stundum meira. Í dag er það þannig að um 50% af útsöluverði á bensíni og 45% af verði díselolíu fer í ríkissjóð og hefur aldrei verið lægra. Stundum er betra að kynna sér málin áður en göslast er af stað með einhverja vitleysu.
Það ætti fyrrum stjórnarformaður N1 að vera búinn að læra.
Þegar betur er að gáð …
Björn Valur Gíslason - February 2, 2012 - 10 athugasemdir

