Góður gangur

Það er mikill gangur í sjávarútveginum þessi misserin eins og víða má sjá merki um. Í gær kom nýtt skip í flota Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað þegar Torbas, 68 metra langt og 14 metra breitt vel búið fjölveiðiskipi lagðist þar við bryggju. Skipinu er ætlað er að leysa hið fornfræga skip Börk NK af hólmi en það skip er fyrir löngu komið í hóp frægustu aflaskipa íslenska flotans. Síðast liðið vor réðst Samherji í eina stærstu fjárfestingu í sjávarútvegi um langan tíma þegar félagið keypti landvinnslu Brim hf á Akureyri auk aflaheimilda upp á 14,5 milljarða króna. Í slippnum á Akureyri má einnig sjá skip sem fyrirtækið er að taka í notkun eftir miklar endurbætur til viðbótar öllum hinum.
Ísfélagið í Vestmannaeyjum er svo með skip í smíðum í Chile sem áætlað er að komi hingað heim í ár. Eyjamenn hafa reyndar verið öflugir í að endurnýja flotann sinn á síðustu árum og er skemmst að minnast Þórunnar Sveinsdóttur VE í því sambandi auk fleiri nýrra skipa.
Mikil fjárfesting hefur einnig átt sér stað í tengslum við vinnslu á makríl og öðrum tækninýjungum til vinnslu á sjávarafurðum eins og kunnugt er.
Ótal fleiri dæmi í þessa veruna má nefna til marks um almennt gott gengi sjávarútvegsfyrirtækja.
Það er því óhætt að segja að uppgangurinn í sjávarútveginum hafi líklega sjaldan verið meiri en einmitt núna þó auðvitað sé talsverður munur innan greinarinnar eftir eðli fyrirtækja.
Það mun því væntanlega verða sjávarútvegurinn sem enn og aftur mun rífa þetta land upp úr skítnum eftir að misvitrir stjórnmálamenn hafa sett allt í klessu.
Það er gömul saga og ný.