Klínum þessu á Jón

Vegna pistils míns frá því gærkvöldi er rétt að benda á frétt frá því í morgun, þar sem stjórnarformaður Matís skýrir nánar af hverju hætt var við að sækja stóran styrk frá ESB til félagsins:

Fyrir styrkinn átti að kaupa tæki til að mæla skordýraeitur og önnur efni í matvælum með það að markmiði að uppfylla skilyrði matvælalöggjafar ESB eins og Alþingi samþykkti í fyrravor.

Friðrik segir að eftir á að hyggja hafi ekki verið rétt að sækja um styrkinn. Hann segir að viðskiptalegar forsendur fyrir því að koma sér upp þeim tækjabúnaði sem átti að kaupa og starfsfólki til að nýta hann hafi ekki verið til staðar.

Ætlunin var að rukka Matvælastofnun og aðra fyrir rannsóknir með nýja tækjabúnaðinum, en stofnunin ber ábyrgð á að skilyrði matvælalöggjafarinnar séu uppfyllt. Friðrik segir að of mikil óvissa hafi verið um tekjur til að hættandi væri á að kaupa tækin. Þá hafi verið líkur á að Matís þyrfti að borga tekjuskatt af styrknum.

Af orðum stjórnarformansins má skilja að Jón Bjarnason ráðherra hafi ekkert gert til að hafa áhrif á ákvörðun stjórnarinnar, en hann segir samt að “pólitísk afstaða Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi ráðið miklu um að umsóknin hafi verið dregin til baka. 

Hann segir Jón ekki hafa gert neitt til að hafa sjálfur áhrif á ákvörðun stjórnarinnar, [...] „Það er alltaf þannig í stórum álitamálum að menn verða að leggja eyrun við jörðina og hlusta eftir því hvort starfsemin sé í samræmi við það sem eigandinn reiknar með,“ segir Friðrik.

En nú er það svo að það er ekki Jón Bjarnason sem á Matís, heldur allir Íslendingar saman.

Það mætti jafnvel halda að vel þekkt afstaða Jóns sé notuð sem afsökun fyrir samskiptaklúðri æðstu manna hjá Matís. Fréttablaðið bítur á agnið og setur sem fyrirsögn: Matís vill ekki styrk ESB vegna ráðherra.

Klínum þessu á Jón, hann liggur svo fjári vel við höggi.