Er sonur minn nauðgari?

Stúlka hefur kært hann fyrir að hafa nauðgað sér. Hvað á ég að halda? Á ég að standa með honum? Mínu holdi og blóði? Biðja hann um að koma ekki í aðventukaffið heima á sunnudaginn? Hvað á ég að segja ættingjunum? Á ég að hætta við aðventukaffið?

Á ég að láta eins og ekkert sé? Kannski þægilegast. Er það of einfalt? Kannski er þetta lygi. Ég vona það. Litli drengurinn minn gerir ekki svona lagað. Ekki hann.

============

Það er áfall þegar einhver sem stendur okkur nær gerir eitthvað hræðilegt af sér, eða er ásakaður um eitthvað hræðilegt. Hvernig tekst maður á við það? Það er mannlegt og skiljanlegt að vilja ekki að það sé satt.

Af sama meiði eru viðbrögð okkar þegar einhver sem við teljum okkur þekkja er í þeirri stöðu. Kennari sem við höfum treyst og litið upp til. Presturinn í hverfinu, sem skírði barnið okkar. Biskupinn sem messar í útvarpinu. Fótboltastjarnan sem unglingurinn okkar dáir og hangir upp á vegg í herberginu. Sjónvarpsstjarnan sem kemur inn í stofu á hverju þriðjudagskvöldi og unglingurinn skellihlær yfir.

Saklaus uns sekt er sönnuð segja fjölmargir. En þangað til? Hvað gerum við á meðan við bíðum eftir dómi? Tekur það ekki, hvað… 9 mánuði?

Eigum við að láta eins og ekkert sé? Fara áfram í messu? Horfa áfram á sjónvarpið og hlæja?

Hvað myndum við gera ef þetta væri sonur okkar? Ég myndi krefja hann að hann segði söguna alla. Allan sannleikann. Þetta er ekki lengur hans einkamál.

======

Fræg sjónvarpsstjarna er ásökuð um alvarlegt brot. Ekki bætir úr skák að hann hefur talað ruddalega um konur, sagt ljóta hótfyndna brandara um konur sem hann hafa gagnrýnt. Hans opinbera persóna er mörg hundruð milljón króna vörumerki. (Hvar eru mörkin á milli opinberu persónunnar, mannsins utan á símaskránni, og mannsins á bakvið, þess sem stendur inni í símaskránni með okkur hinum?) Unglingar dá hann, finnst eins og þeir þekki hann. Það er mannlegt að taka frekar afstöðu með þeim sem við þekkjum.

Með því að láta eins og ekkert sé, horfa áfram á sjónvarpið og hlæja erum við að taka vissa afstöðu. Hin hliðin er óþekkt manneskja, nafnlaus. Andlitslaus. Um þetta fjallaði pistill Drífu Snædal. Má vera að hún hafi verið fljót til, “pre-emptive”, en hún hefur fyllilega réttmæta ástæðu til að álíta manninn drullusokk.

Sjónvarpsstjarnan hefur sent frá sér loðna tilkynningu. Sagt að það sé “refsivert að hafa samband við handrukkara í þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki.” En segir svo ekkert meira. Hálfkveðnar vísur. Sendi stúlkan handrukkara á hann? Hann segir það samt ekki. “Af tillitssemi við hlutaðeigandi mun ég ekki tjá mig meira um þessi mál opinberlega að svo stöddu.” Af tillitsemi við stúlkuna, sem hann sakar um gróft brot gegn sér? Maðurinn verður að skýra mál sitt betur en þetta, ef hann ætlar áfram að koma inn í stofu, í hverri viku.