Feilsporið 2012

Frétta- og dægurmálasíðan Patentlausn hefur tilkynnt að fyrirtækið Já.is hljóti í ár tilnefninguna Feilsporið. “Þetta er ný viðurkenning, eða ekki beint viðurkenning heldur frekar skammarverðlaun. Þessi tilnefning er veitt fyrirtæki sem hefur tekið alvarlegt feilspor í starfsemi sinni eða markaðssetningu”, segir ritstjóri síðunnar og formaður dómnefndar.

Já.is stóð eiginlega uppúr, fyrir þann gjörning að setja fyrirsætu á símaskránna, “Gillzenegger”, sem helst hafði unnið sér það til frægðar að vera ungu fólki slæm fyrirmynd, segja brandara á kostnað minnihlutahópa, sýna sterablásna bringu sína í fjölmiðlum, og ekki síst fyrir að hóta nafngreindum konum með ógnandi og hótfyndnum nauðgunarbröndurum til að fá þær til að halda kjafti, af því þær höfðu leyft sér að tjá skoðanir sínar opinberlega um jafnréttismál. Auk þess að prýða kápu símaskrárinnar var fyrirsætan titlaður ritstjóri skrárinnar, en ritstjórnin fólst í því að setja litmyndir af völdum vinum og fallegu frægu fólki eins og Sveini Andra Sveinssyni í símaskrána” segir í umsögn dómnefndar.

“Okkur datt í hug EmmEss ís, fyrir að setja á markað kynskiptan stráka- og stelpuís, en EmmEss sáu að sér þegar þeir skynjuðu að sú hugmynd féll í grýttan jarðveg og hættu snarlega við allt saman. Forsvarskonur já.is vildu hins vegar aldrei viðurkenna að það hafi verið hugsana- og dómgreindarleysi að setja vöðvafyrirsætuna á kápu símaskrárinnar. Segja má að fyrirsætan sé erkitýpa þeirrar forheimskandi útlitsdýrkunar sem tröllríður dægurmenningu ungs fólks í dag” segir ritstjórinn. “Það er fólk sem talar og hugsar eins og hann, sem fær 18 ára stelpur til að leggjast á skurðarborð og setja í sig gervibrjóst og stráka til að bryðja stera til að blása út vöðva. Útlitið er ofar öllu.”

Fyrirsætan hefur nú nýverið fengið á sig tvær kærur fyrir nauðgun, en kærurnar eru til rannsóknar hjá lögreglu.

Viðurkenningargripurinn fyrir Feilsporið sem já.is hlýtur í ár. Styttan sýnir mann sem er að gera í buxurnar.