Anorexíu-lúkkið þykir flott!

Var að leita að svolitlu inná mbl og varð starsýnt á þessa vesalings fyrirsætu, sem þykir greinilega gasalega smart, en hún auglýsir eitthvert lúxusmerki fyrir H&M. Nú gæti verið að stúlkan sé ekki í alvörunni alveg svona rosalega kinnfiskasoginn og vansvefta, heldur að myndasmiðurinn hafi betrumbætt myndirnar í Fótósjoppunni til að gera nú örugglega kinnbeinin enn útstæðari, handleggina mjóa sem spóaleggi og litarhaftið svona grágrænt, svo minnir helst á liðin lík.

En sem sé, tískubransinn er ekkert að ýta eftirsóknarverðu lystarstolslúkki út úr sviðsljósinu. Stúlkur, svona eigið þið að líta út samkvæmt hátískunni:

Fleiri myndir má finna HÉR.