Af andlegum sjúkleika Gillzenegger

Egill Einarsson, “Gillzenegger” er að mörgu leyti holdgerfingur flests þess sem er að í okkar samfélagi - yfirborðsmennska, frægðardýrkun, upphafning heimsku og ofbeldis, klámvæðing, kynþáttafordómar og hatur á konum.

Það er því bæði merkilegt og gleðilegt að horfa upp á að Egill “Gillzenegger” Einarsson skuli loksins vera að fá verðskuldaða athygli. Undanfarin ár hafa fjölmiðlar – sérstaklega DV og Fréttablaðið – nefnilega lagt sig eftir því að birta fréttir um þennan mann, uppátæki hans og yfirlýsingar, nú eða bara hvar síðst sást til hans. Og nú síðast hefur fjölmiðlafyrirtækið 365, sem gefur út Fréttablaðið, búið til heilan sjónvarpsþátt fyrir hann. Fyrir vikið hefur Egill Einarsson getað byggt heljarinnar career í kringum sjálfan sig og vörumerkið “Gillzenegger”, sem er vörumerki Egils Einarssonar.

Það er gjörsamlega óþolandi að fjölmiðlar haldi endalaust áfram að gefa Agli Einarssyni rými – því með því að hampa honum eru útgefendur símaskrárinnar, DV, Fréttablaðsins og Stöð 2 og allir aðrir fjölmiðlar sem hafa haldið honum að áhorfendum og lesendum, beinlínis þátttakendur í óþverraboðskap hans: Í staðinn fyrir að ófyrirgefanleg viðurstyggð Gillzenegger verði til þess að honum sé úthýst úr siðuðu samfélagi fær hann stöðugt rými og vettvang til að boða heimsmynd sína.

Það er því sérstakt ánægjuefni að fólk sé farið að veita því athygli hverskonar boðskap Egill Einarsson, “Gillzenegger”, hefur haft fram að færa í gegn um tíðina. Það er nefnilega mjög mikilvægt að það gleymist ekki að Egill Einarsson, Gillzenegger, er ekki talsmaður hreystis eða heilbrigðs lífernis: Hann er talsmaður kynferðislegs ofbeldis.

Gagnrýni á Egil er yfirleitt svarað með því að hann sé að grínast og að maður þurfi nú bara að sýna smá húmor eða að hann sé “snillingur” í að vekja á sér athygli og að maður þurfi nú að gefa honum það. Í athugasemdum við færslu Hjálmars Sveinssonar sem rifjaði óþverraboðskap Egils Einarssonar upp í færslu sem hét “Ofstækisfull kvenfyrirlitning”, hér á Eyjublogginu um daginn, mátti lesa athugasemdir á borð við:

“Ofstækisfullt húmorsleysi” er nærra lagi [...] Í offorsinu við að bretta upp á nefið og benda ásakandi fingri þá virðist það algerlega hafa farið framhjá þér að þetta er EKKI alvara: þetta er spaug/háð/ádeila/skemmtiefni … 

Merkilegt hversu margir stækir vinstrimenn/últrafeminístar eru innilega húmorforlatt. Ætli sama genið stjórni þessu?

Og litlu seinna:

Voðalegt húmorsleysi er þetta í vinstraliðinu.

Ykkur finnst skelfilegt að það sé einhverj spjátungur úti bæ sem sé að gera kersknislegt grín að valinkunnum vinstrisinnuðum konum.

Einhvernveginn virðist þetta nefnilega vera spurning um hægri-vinstri. Vegna þess að Egill Einarsson er hægrimaður, og þær konur sem hann vill láta nauðga allar vinstra megin miðju, þá hlýtur öll gagnrýni á ofbeldisóra Egils vera einhverskonar vinstriöfgar og ritskoðunartilraunir? En kannski er eitthvað til í því að hægrimenn hafi meiri “húmor” fyrir því að konum sé nauðgað. Allavegana er annar helsti áhugamaður um pólítískt kynferðisofbeldi hér á landi Baldur Hermansson, en hann hefur “grínast” fyrir því að konur sem honum finnst að hafi rangar skoðanir séu beittar kynferðislegu ofbeldi til að kenna þeim lexíu.

Það fyndna er að þegar Gilzenegger er gagnrýndur fyrir að boða pólítískt ofbeldi af viðurstyggilegustu sort er því svarað með grenji um ritskoðun og Sovétkommúnisma:

Hugsanalögreglan komin á fullt. Fjögurra ára gömul bloggfærsla (sem fyrir löngu er búið að henda og biðjast afsökunar á) er dregin fram og siðapostularnir froðufella af heilagri hneykslun um leið og ásakandi fingrum er bent í allar áttir.

Skoðanastjórnun er það sem koma skal í Alþýðulýðveldinu Íslandi og hamingjan hjálpi okkur öllum.

Það er athyglisvert að nákvæmlega sömu rök voru dregin fram þegar bent var á að nauðganaórar Baldurs Hermanssonar væru ósmekklegir, því þá vildu stuðningsmenn Baldurs, þeirra á meðal Páll Vilhjálmsson, halda því fram að hann væri bara að “grínast”, og að það væri einhverskonar vond vinstriritskoðun að vilja “þagga niður” í Baldri.

En nei, Egill er ekki að “grínast” og þetta grín hans er ekki fyndið, ekkert frekar en “grín” Baldurs var fyndið. Það er ekki grín að hvetja til þess að konum sé nauðgað til að þagga niður í þeim.

Þriðja málsvörnin sem er höfð uppi er sú að Egill hafi nú einhvernveginn nokkuð til síns máls – hann sé að stinga á einhverju alvarlegu kýli.

Gott dæmi er þessi athugasemd við frétt Eyjunnar:

Þið blammerið Egil en aldrei er talað um þann skaða sem öfgafemínisminn hefur valdið.  … Ég hef ekkert á móti jafnrétti kynjanna en því miður vilja flestir femínistar eitthvað allt annað en jafnrétti, þeir vilja forréttindi.

Þetta viðhorf, að það sé einhver “öfgafemínismi” að drepa allt er ótrúlega útbreitt. Sérstaklega meðal ungra karlmanna sem telja að einhverjir “öfgafemínistar” séu að reyna að eyðileggja alla hluti. Þessi hugmynd skýtur ótrúlega oft upp kollinum í kommentakerfum þegar femínismi er ræddur.

Og hér held ég að við séum komin að kjarna málsins. Tal, eins og það sem Egill gerði sig sekan um, er einmitt ætlað til þess að “svara” femínistum: Það er einhverskonar mótleikur við öllum þeim “skaða sem öfgafemínisminn hefur valdið”. Með því að ryðja út úr sér ofbeldisfullum klámóþverra um nauðganir er Egill að sýna skoðanabræðrum sínum að það sé allt í lagi að hugsa þannig um konur: Þær þurfi barasta að láta nauðga sér til að þær hegði sér, og að tala þannig um konur. Sérstaklega femínista.

Að lokum hvet ég alla til að lesa færslu Egils, og helst líka athugasemdirnar við hana, því hún er eiginlega það viðurstyggileg að maður þarf að sjá það með eigin augum til að trúa því á hvaða plani hann er. Ég vil því leyfa mér að birta hana hér í heilu lagi, tekna af bloggi Drífu Snædal sem rifjaði hana upp fyrir nokkrum dögum:

29. nóvember 2007
Fréttastofa Gillz – Þorir meðan aðrir þegja

Síminn hjá Ásgeiri Kolbeinssyni hefur ekki stoppað undanfarna daga og ku ástæðan vera sú að feministar hafa verið óvenju óþolandi undanfarið. Þegar feministar verða of áberandi í fjölmiðlum hefur ávallt virkað að kalla til Ásgeir Kolbeinsson til þess að gefa þessum leiðinda rauðsokkum einn granítharðan í háruga bílskúrinn til þess að þagga niður í þeim. Það er almenn vitneskja að þessir feministar væru ekki að haga sér svona ef þær væru að fá hágæðalim heima fyrir. Hinsvegar er þetta ekki öfundsvert verkefni hjá Ásgeiri Kolbeinssyni því að þessar “dömur” eru flestallar ógeðslegar auk þess að vera geðsjúklingar. Rannsóknir hafa sýnt að leið og þessir feministar fá klukkutíma ást frá manni eins og Ásgeiri eða sambærilegum fola þá hætti þær þessum kjánaskap og fara að haga sér eins og eðlilegar konur.

Þar sem að Ásgeir Kolbeinsson er hluti af ritstjórn Fréttastofunnar þá tökum við á móti gjöfum alla þessa viku frá 12-16.

Fréttastofan leggur mikla áherslu á að eftirfarandi konur fái mök og það strax: (Ef Ásgeir Kolbeinsson treystir sér ekki í þetta verkefni þá hefur Fréttastofan náð samningum við eftirfarandi menn til að afgreiða “dömurnar”: Buka Wamukota Damnida Wanjala, Yao Vinza Yohanze Mohumbu og Jamal Johnson.)

Drífa Snædal, framkvæmdastýra þingflokks vinstri grænna. Drífa Snædal fór mikinn í Kastljósinu á dögunum þar sem hún sat á móti Agli Helgasyni og reyndi að rífa kjaft. Aldrei hefur kvenmaður misst jafn mikið magn af saur í Kastljósinu áður. Drífa talaði í hringi og vissi ekki hvort það voru páskar eða jól. Fréttastofan hafði samband við Þórhall Gunnarsson ritstjóra Kastljóss og hafði hann þetta um málið að segja: “Ég vil helst ekki tjá mig um málið en ég get sagt að það er ennþá verið að reyna að þrífa stúdíóið og á mínum 35 ára ferli hef ég aldrei séð annað eins”. Fréttastofan hefur tilnefnt Ásgeir Kolbeinsson og Jamal Johnson í að tittlinga Drífu ASAP.

Kolbrún Halldórsdóttir, alþingismaður. Kolbrún hefur aldrei fengið stifan lim og því hefur Fréttastofan ákveðið að senda Ásgeir, Jamal, Buka og Yao alla í þetta verkefni. Kolbrún toppaði sjálfa sig í leiðindum þegar hún stakk upp á því að nýfædd börn yrðu ekki sett í blá eða bleik föt. Kolbrún er í fullri vinnu við að vera óþolandi og tala með rassgatinu og það er kominn tími til að þagga niður í henni endanlega og munu þessir herramenn sem Fréttastofan taldi upp áðan fylla hana eins og hátíðarkalkún. Það mun vonandi vera til þess að hún steingrjóthaldikjafti og fari að haga sér.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, alþingismaður. Steinunn er portkonan sem vildi breyta orðinu ráðherra í ráðfrú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Steinunni Valdísi dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verkefni að sér. Fréttastofan ákvað að gefa Ásgeiri Kolbeinssyni frí í þetta skiptið, en Fréttastofan vill ekki hafa það á samviskunni að Ásgeir finnist hangandi í ljósakrónu í vesturbænum.

Anna Margrét Björnsdóttir, blaðamaður. Fréttastofan verðlaunar að sjálfsögðu fólk sem gerir góða hluti og hún Anna Margrét Björnsdóttir er að gera mjög góða hluti og fær hún Blástursverðlaun Fréttastofunnar í ár. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttastofunnar hefur Anna bætt öll met í blæstri á samstarfsfélögum sínum og yfirmönnum á Fréttablaðinu. Heimildarmaður Fréttastofunnar vildi ekki koma undir nafni en hann hafði þetta að segja: “Ég hef aldrei séð annað eins, hún gengur um fyrirtækið eins og mennsk Nilfisk ryksuga. Hún er duglegri að ryksuga inni hjá yfirmönnunum en af og til verðum við strákarnir niðri lucky og hún “ryksugar” okkur ef þú veist hvað ég á við.”

ÞETTA er Egill Einarsson: Maður sem vill láta nauðga konum sem honum finnst hafa rangar skoðanir – maður sem er þeirrar skoðunar að það eigi að þagga niður í konum með kynferðislegu ofbeldi.

Því það sem Egill Einarsson er að tala um heitir nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Til þess að hægt sé að tala um kynlíf þarf upplýst samþykki beggja aðila. Egill Einarsson er ekki að tala um það, heldur talar hann um að “senda” einhverja ímyndða “fola”, þar af þrjá sem virðast eiga vera blökkumenn, til þess að “fylla” eða “tittlinga” og “afgreiða” konur sem honum finnst að hafi rangar skoðanir – eða hafi sig of mikið í frammi, séu “óvenju óþolandi” eða “tali með rassagatinu”: Markmiðið er að þagga niður í þeim.

gefa þessum leiðinda rauðsokkum einn granítharðan í háruga bílskúrinn til þess að þagga niður í þeim

Fyrir utan klámóþverrann, kynþáttafordómana og ofbeldisórana er meginþema þessa “gríns” að það sé kominn tími til að það sé “þaggað niður” í konum, sérstaklega femínistum, og að kynferðislegt ofbeldi sé besta leiðin til að sjá til þess að þær, “steingrjóthaldikjafti og fari að haga sér”. Aðdáendur komu því svo að í kommentum að hann hefði gleymt Guðfríði Lilu og Sóleyju Tómasdóttur.

Því Egill Einarsson er ekki einhver ómerkjungur úti í bæ, heldur er hann maður sem á aðdáendur, maður sem fær ómælt rými í fjölmiðlum – maður sem er settur á forsíðu símaskrárinnar! Og með því að hvetja til kynferðislegs ofbeldis er Egill “Gillzenegger” Einarsson líka að segja aðdáendum sínum og skoðanabræðrum, að þeir megi tala eins, samanber þessa athugasemd við færsluna:

Þvílík snilld. Gillz þorir meðan aðrir þegja. Segir bara það sem allir aðrir hugsa

Use Facebook to Comment on this Post

Subscribe

Subscribe to our e-mail newsletter to receive updates.