Kannski ekki alveg leyniræða Krústjefs, en samt… ég er sérstaklega ánægður með lokaorðin: ‘lets roll’. Þannig ættu ræður að enda!
http://www.zippyvideos.com/8536314705003066/bushcliquetruth/
M
- May 24, 2006 - Eldra
Kannski ekki alveg leyniræða Krústjefs, en samt… ég er sérstaklega ánægður með lokaorðin: ‘lets roll’. Þannig ættu ræður að enda!
http://www.zippyvideos.com/8536314705003066/bushcliquetruth/
M
- May 24, 2006 - Eldra
Seinustu daga hafa nokkrar fréttir og greinar í helstu dagblöðum bandaríkjanna staðfest þá tilfinningu að ríkjandi meirihluti þar vestra sé í alvarlegum vandræðum. Flokkurinn hefur jafnvel tapað miklu fylgi í kjördæmum sem áður voru talin ‘örugg’. Í bandaríkjunum er stjórnmálum hagað þannig að mörg kjördæmi eru annað hvort yfirgnæfandi demokratísk eða republlikönsk – stjórnir fylkjanna skipa pólitískar nefndir til þess að teikna upp mörk kjördæma, og keppast demokratar þá á um að búa til sem flest demokratísk kjördæmi, og republikanar um hið gagnstæða. Fyrir vikið veltur útkoma kosninga oft á því hvernig kjósendur í fáeinum kjördæmum kjósa. Það er til marks um hversu spennandi næstu kosningar verða að fjöldi kjördæma sem talin eru ‘samkepnnishæf’ eða ‘competitive’ fer vaxandi. Nú telja menn að allt að 42 þingmenn republikana þurfi að berjast fyrir endurkjöri. Washington post sagði á laugardaginn frá vandræðum þeirra í Virginia Beach, sem hefur verið öruggt vígi íhaldsmanna.
http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/content/article/2006/05/19/AR2006051901921.html?referrer=email
Samkvæmt fréttaskýringu Washington Post á mánudaginn http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/content/article/2006/05/21/AR2006052101096.html binda menn forsetans nú allar vonir við að bjarga flokknum í nóvember – ef demokratar vinna kosningarnar sé úti um ‘arfleið’ forsetans. En óvinsældir forsetans gera að verkum að enginn frambjóðandi sér sér hag í að fá hann á fundi – þess í stað hefur forsetinn einbeitt sér að því að mæta á fjáröflunarsamkomur þar sem hann vælir peninga út úr auðugum stuðningsmönnum flokksins, sem er eðlilegt, enda get ég ekki ímyndað mér annað en að það sé helst í þeim hópi sem hann á enn vini. Sannast þá sennilega það sem margir sögðu, að ‘the true base’ forsetans væru auðmenn, en ekki íhaldssamur eða hægrisinnaður almenningur.
M
- May 24, 2006 - Eldra
Ég biðst afsökunar á þeirri löngu bið sem hefur orðið á póstum – nú um helgina var söguþing haldið í Reykjavík, og höfundur var þar upptekinn mestan part tímans. Það sem fjölmiðlum hefur helst fundist standa upp úr var auðvitað erindi Guðna Th. um símahleranir. Sannast þar að sagnfræði sem er í ‘samræðu’ við samtímann vekur mesta athygli.
M
- May 18, 2006 - Eldra
Gæti það verið betra fyrir demokratana að tapa í nóvember? Adam Nagourney veltir því fyrir sér í ágætri grein í NYT http://www.nytimes.com/2006/05/14/weekinreview/14nagourney.html?_r=1&ex=1148011200&en=15e0a7e796167b5c&ei=5087%0A&oref=slogin
Ef demokratarnir ná að vinna stjórn í þinginu munu kjósendur fara að gera kröfur til þeirra að standa fyrir breytingum – en meðan Republikanar halda öldungadeildinni og forsetaembættinu væru tækifæri þeirra til þess að gera nokkurn hlut nánast engir. Um leið gætu republikanarnir farið að kenna þinginu um allar ófarir þjóðarinnar… Ég held að þessi greining sé rétt – það er ábyggilega best fyrir demokrataflokkinn að vinna á í kosningunum, en ná ekki fullum meirihluta. Þannig þurfa republikanarnir sjálfir að bera ábyrgð á þeim ógöngum sem þeir hafa komið þjóðinni í.
Það eru tvær hliðar á þessu – og ein er sú að það er ekki víst að Bandaríkin hafi efni á því að leyfa núverand Republikanaflokki að vera við völd mikið lengur.
M
- May 18, 2006 - Eldra
Vinstri grænir Demokratar og óábyrgir apakettir
Nýleg könnun Washington Post og ABC sýnir að Republikanaflokkurinn og Bush halda áfram að falla í áliti hjá almenningur í Bandaríkjunum. Í fyrsta lagi er nú yfirgnæfandi meirihluti bandaríkjamanna þeirrar skoðunar að innrásin í Írak hafi verið
- May 16, 2006 - Eldra
Fyrir þá sem ekki sáu Colbert á ‘the White House Correspndents Dinner’ er the daily Kos með allan tekstann… Colbert er djöfuls snillingur! Hindenburg líkingin er sennilega best.
http://www.dailykos.com/storyonly/2006/4/30/1441/59811
M
- May 15, 2006 - Eldra
Þetta er nýjasta fréttin af símnjósnamálinu Chaneygate:
http://blogs.abcnews.com/theblotter/2006/05/federal_source_.html
Federal Source tells ABC News: We Know Who You
- May 15, 2006 - Eldra
Það er töluvert veður búið að vera í Bandaríkjunum í allan dag útaf yfirlýsing sem forsetinn mun flytja í kvöld – allir búast við að hann muni lýsa því yfir að þjóðvarðliðið muni sent á landamæri Mexiko til að stoppa ólöglega innflytjendur. (sjá t.d. þessa frétt í Washington Post: http://letters.washingtonpost.com/W4RT03DC5912987EDCC703252D9E80)
Þó mér finnist reyndar að lönd hljóti mega halda uppi landamæragæslu, er eitt og annað um þetta að segja.
1) Bandaríkjaher hefur ekki yfir að ráða mannafla til þess að skjóta á vesæla íraka og nú líka vesæla mexikana
2) Þetta er útspil til þess að gleðja ‘the base’ – sérstaklega fólk á borð við ‘the minutemen’, sem eru hópar vopnarðra óbreyttra borgara, hvítir miðaldra menn með byssur á pikkupptrukkum, sem hafa tekið það upp hjá sjálfum sér að halda vörð við landamærin.
3) Þetta er tilraun til þess að snúa athyglinni frá njósnabissness Cheney (það var nefnilega Cheney sem virðist hafa staðið á bak við stórfelldar njósnir NSA – hvern hefði grunað?! sjá: http://www.nytimes.com/2006/05/14/washington/14nsa.html?_r=1&oref=slogin)
En hvað sem öllu þessu líður verð ég að segja að það hljómar betur að hafa herinn á landamærunum en ‘the minutemen’. Og – þetta er eiginlega best – herinn á bara að vera á landamærunum þar til ríkið hefur ráðið nógu marga ‘civilian contractors’ til þess að aðstoða landamæraeftirlitið… ‘civilian contractors’ til að annast landamæragæslu? Það voru líka ‘civilian contractors’ sem sáu um yfirheyrslur og fangelsisgæslu í Írak. ‘Civilian contractors’ eru fínt orð yfir málaliða, og ég held að það hljóti allir að vera sammála að það sé slæmt mál að láta málaliðasveitir annast landamæragæslu. Af tvennu íllu held ég að herinn sé betri.
M
- May 15, 2006 - Eldra
Þetta hefur mig alltaf grunað – en nú er loksins búið að sanna það vísindalega. Magn innbyrðs áfengis hefur ekki áhrif hversu hættulegir hættulegir hlutir eru. Ég hef reyndar ekki reynt við krókodíla eða Alligators…
Þetta var í the Onion:
‘Study: Alligators Dangerous No Matter How Drunk You Are’
BATON ROUGE, LA
- May 15, 2006 - Eldra
Rakst á þetta á núna áðan – BBC tók viðtal við saklausan leigubílsstjóra í staðinn fyrir sérfræðing um tónlist og netútgáfu.
Tekstinn er af Dailymail.co.uk, og þar er líka hægt að horfa á viðtalið í heild sinni – ég verð að viðurkennað að aumingja maðurinn leit ekki út fyrir að vera neitt vitlausari í þessu viðtali en hver annar. Ætli þetta segi ekki eitthvað um blaðamennsku…
The man stepped unwittingly into the national spotlight when he was interviewed by mistake on the corporation’s News 24 channel.
With the seconds ticking down to a studio discussion about a court case involving Apple Computer and The Beatles’ record label, a floor manager had run to reception and grabbed the man, thinking he was Guy Kewney, editor of Newswireless.net, a specialist internet publication.
Actually, he was a minicab driver who had been waiting to drive Mr Kewney home.
Video: Watch the interview here
Baffled, but compliant, the driver was fitted with a microphone and allowed himself to be marched in to the studio. Cameras rolled, and he was quizzed live on air by consumer affairs correspondent Karen Bowerman – who missed the cabbie’s panic-stricken expression when he realised he was being interviewed.
Despite knowing nothing about the case – a judge ruled that the computer company could continue to use the Apple symbol for its iTunes download service – the man gamely attempted to bluff his way through and, speaking in a strong French accent, sustained a (somewhat illogical) form of conversation. Meanwhile, the real Mr Kewney watched indignantly on a monitor in reception.
© 2012 Freedomfries. All Rights Reserved.
Powered by WordPress. Designed by ![]()
