Hin síðustu ár hefur tekist að skipta sambandi Evrópuríkja upp í þau sem sameinast um evruna og hin. Tvö lönd hafa síðan tekið öll völd innan evruhópsins með slíkum árangri að draugar síðari heimstyrjaldar hafa glaðvaknað. Yfirgangur með tilheyrandi sundrungu.
Fjárfestar leika sér að eldinum og matsfyrirtæki taka sér mikið vald. Gróðinn drottnar og ráðaleysi evruhópsins ansi langdregið með óheyrilegum kröfum á eina þjóð. Nærsýnin í þessu öllu saman er slík að furðu sætir. Suðurhluta Evrópu er stefnt í hættu með fjárhættuspili og stóra samhengið gleymist. Það kemur því hreint ekki á óvart að Bandaríkin taki af skarið nú í kvöld. Fréttin um val forseta Þýskalands, Joachim Gauck, eru sömuleiðis góðar fréttir.
Hins vegar skapa kröfurnar um enn frekari blóðsparnað vandamál og eru í raun vandamálið. Óskiljanlegt að 325 milljónir evra tafarlausum viðbótarsparnaði sé bætt við ofan á allt annað á ögurstundu ásamt öðrum ruddaskap í 10 liðum (einkavæðing vatns t.d. heimtuð!). Í stað þess að skammast út í hversu hægt skipulagsbreytingar gangi þyrfti kannski að gera sér grein fyrir að slíkt tekur tíma. Síðastu þrengingaráætlun er stórlega ofaukið. Jafnvel fjármálaráðherra Þýskalands ofbýður hvað lagt er á grískan almenning (haft eftir honum í gær). Hann er þá mannlegur eftir allt saman.
Orðum Viviane Reding, varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, sem ku hafa sagt að Grikkir ættu að hætta að kenna öðrum um hvernig ástatt er, er því til að svara að yfirgnæfandi meirihluti Grikkja (um 76%) vill evruna áfram og um 82% landsmanna kenna grískum stjórnmálamönnum um hvernig komið er, ef marka má skoðanakönnun sem birt var í gríska dagblaðinu Ethnos í gær (sunnudag).
Launþegahreyfingar kalla til samstöðu með grísku þjóðinni hér í minni frönsku borg kl. 18 í dag. Frakkar eru nefnilega ófeimnir við að tjá sig.
