Barnaskapur Norðursins

Vinnulöggjöf er rústað, sem og allri samfélagslegri þjónustu. Sérfræðingarnir svartklæddu flæða yfir Suðrið með “kínverskar” lausnir. Skyldi Norður-Evrópa vera tilbúin að samþykkja hjá sér þær breytingar sem hún þröngvar upp á Suður-Evrópu? Eða er þetta það sem koma skal í Norðrinu?

Heilbrigðiskerfið, sjúkrasamlagið, menntakerfið, allt skal skorið við nögl. Allar menningarstofnanir sveltar. Eftirlaunþegar sem þau yngri en 25, millistétt sem öll alþýða skulu gerast skulda- eða vinnuþrælar. Velferðarríkið tilheyrir liðinni tíð – ekki hjá okkur, nei, hjá hinum. Ríkið skal selja helst allt (vatnsveituna líka) og skreppa saman í einn stóran rukkara, ekki til heilla fyrir samfélagið heldur til að þóknast lánardrottnum. Svartklæddu sérfræðingarnar eru með ráð undir rifi hverju. Lífshamingjan er jú ekki þeirra grein.

Spánverjar, Portúgalar og Ítalir fylgjast grannt með örlögum Grikkja. Samkvæmt pistli Sylvie Kaufmann í miðvikudagsblaði Le Monde eru skattaskjól og önnur svik við samfélagið helsti óvinurinn á Ítalíu. Mario Monti þiggi ekki laun fyrir störf sín og kaþólska kirkjan þurfi að leggja sitt til samfélagsins. Á Spáni hafi Mariano Rajoy lækkað kaup sitt (svo það er orðið þrisvar sinnum lægra en laun Sarkozy). Sjónvarpsstjörnur og yfirmenn ríkisfyrirtækja samþykkt 25-30% launalækkun. Laun opinberra starfsmanna hafi verið lækkuð um 5% 2011 en standi í stað 2012. Lögð sé áhersla á að þunginn hvíli ekki eingöngu á millistéttum og allri alþýðu. Það að lækka t.d. lágmarkslaun í Grikklandi án þess að elta þá ríku í skattaskjólin* sé hrópandi óréttlæti sem geri niðurskurðinn þar óbærilegan.

Karolos Papoulias, forseti Grikklands, stendur með þjóð sinni sem þjáist upp á hvern dag og afsalar sér launum alfarið.

1. mars 2012: Í svari forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, til þýsks blaðamanns í Brussel í gær kom fram að hann hefði ákveðið – allt frá því hann tók við embætti 11. nóvember 2011 – að þiggja ekki laun. Lucas Papademos kenndi við Harvard áður en hann var kallaður til.

* 22. febrúar: Grikkland hefur skrifað undir Evrópusamninginn um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum (eins og um 30 önnur lönd, þar á meðal Ísland).

Franskgríski kvikmyndastjórinn Costa-Gavras [m.a. kvikmyndirnar: Compartiment tueur, Z, Aveu, État de siège, Section spéciale, Porté disparu/Missing, Hanna K, Music box], sem var í franska þinginu í boði sósíalista, bað Grikkjum miskunnar: “Hættið að niðurlægja grísku þjóðina, hún er sárþjáð og þá sérstaklega þeir fátækustu”.

Það birtist ansi gott ákall í Libération í gær, þriðjudag, sem hafði farið fram hjá mér (fann það einnig hér): Björgum grískri þjóð frá bjargvættunum! Þar stendur meðal annars: “Grikkland lifir mannlegan harmleik og í ofanálag skal skellt í stjórnarskrána að lánardrottnar hafi forgang! Þetta er skýrt brot á lýðræði.”

Búist er við miklum mótmælum í Aþenu… en nei, það rignir: Hjarta mitt grætur

Viðtalið við fyrrverandi fjármálaráðherra Argentínu, Roberto Lavagna, í Libération á sunnudag vekur sífellt meiri athygli: Við völdum að bjarga fólkinu fremur en bönkunum.

Þessi færsla var srkáð í flokkinn Grikkland, Mannlíf og merkt.