
Þennan dag fyrir 50 árum, þann 13. ágúst árið 1961 var hafist handa við að byggja einhvern þann heimskulegasta múr sem byggður hefur verið. Múr til að múra inni fólkið í eigin landi. Múr sem skipti Berlín í tvennt og umkringdi í raun vesturhluta borgarinnar. Á þeim rúmu 28 árum sem þetta ömurlega mannvirki stóð voru 136 Austur-Þjóðverjar drepnir við að reyna að komst yfir eða undir múrinn.
Sem betur fer var þessi múr rifinn niður í friðsamri byltingu sem framkvæmd var af venjulegu fólki í Austur-Þýskalandi. Og sem betur fer voru stjórnvöld á þeim tíma nægilega skynsöm til að átti sig á að þessi múr og sú einangrun sem hann hafð í för með sér væri tímaskekkja.
En frá því að Berlínarmúrinn var rifinn niður hafa aðrir múrar verið byggðir, hærri og enn ömurlegri. Með dyggum stuðningi hafa stjórnvöld í Ísrael byggt risamúr og múrað inni íbúa Palestínu. Þar eru framin mannréttindabrot á hverjum degi á venjulegu fólki, konum, körlum og börnum. Og vesturveldin horfa á og gera lítið eða ekkert eða styðja jafnvel ógnarstjórnina í Ísrael með háum fjárframlögum og vopnum.
Það er kaldhæðnislegt.
Nánar: Die Zeit
Berliner Zeitung
Der Spiegel
Flokkar: Uncategorized
- Nýr forstjóri Norðurorku er sammála Andra Snæ og var á móti Kárahnjúkavirkjun. (Í viðtali við AKUREYRI Vikublað)
- Stóra systir, Landsvirkjun (sem gjarnan var kölluð Illvirkjun í tíð Friðriks Sophussonar) segist ekki ætla að virkja fyrir fleiri álver.
- Breskir dómstólar viðurkenna að starfsemi bresku lögreglunnar við njósnir á náttúruverndarsinnum voru ólöglegar.
Þessar þrjár staðreyndir segja okkur að heimur batnandi fer og að það er, eftir allt saman, eitthvert réttlæti til í heiminum.
Flokkar: Uncategorized
Ég tilheyri minnihlutahópi í útrýmingarhættu, hópi sem verður fyrir sífelldum árásum. Við verðum fyrir árásum frá hommum og femínistum sem eru að ofsækja okkur. Bara af því að við erum hvítir, gagnkynhneygðir, í jakkafötum, hægrisinnaðir og eigum peninga.
Því eins og Jón Magnússon “hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokks.” (sbr. kynningu á bloggi.) segir: “Ef til vill væri rétt að hann <sem sagt, hvíti karlmaðurinn> gengi með gula stjörnu til aðgreiningar frá almennilegu fólki eins samkynhneigðum og femínistum.”
Einmitt, hættið að níðast á okkur, vondu femínistar og hommar.
Flokkar: Uncategorized
Sumir eru ekki enn búnir að átta sig á því að bensínverð er ekki að fara að lækka, enda væri það afar óeðlilegt. Í raun ætti olíuverð að vera mun hærra sé miðað við það að þessi auðlind er senn á þrotum.
Það er gott að bílaumferð minnkar. Það dregur úr sliti á vegum, minnkar mengun og fækkar umferðarslysum. Sparar samfélaginu sem sagt stórar upphæðir.
Ótrúlegasta fólk dettur samt í eitthvert lýðskrum um að nú þurfi að lækka bensínverð og að ríkið þurfi að lækka álögur sínar. Samt er bensínverð hér lægra en í flestum nágrannalöndum okkar. Og þetta hjal er afar vinsælt. En hvernig væri að fólk sparaði nú við sig aksturinn, sameinaðist í bíla og nýtti sér almenningssamgöngur eða hjólaði og labbaði þegar það hentar? Sem betur fer hefur orðið viðhorfsbreyting í samfélaginu og síður eins og samferða.is blómstra. Þess vegna er heldur leiðinlegt að hlusta nöldrið í fulltrúum blikkbeljunnar á hverjum degi í flestum fjölmiðlum landsins. Þeir þurfa að taka sér tak.
Flokkar: Uncategorized