Ósýnleg mengun

Þegar magn svifryks er skoðað í Reykjavík hefur komið í ljós að mest magn ryksins er samsett úr malbiksögnum sem hafa losnað vegna nagladekkja. Þessi staðreynd hefur leitt til þess að mikill áróður hefur verið í gangi til að draga úr notkun nagladekkja innan borgarmarkanna. Ég ætla ekki að taka afstöðu til þeirrar umræðu hér.
Það sem mig langar hins vegar til að benda á að malbiksagnirnar sem losna vegna nagladekkjanna eru ekki hættulegasti hluti svifryksins. Malbiksagnirnar eru það stórar að við getum hóstað þeim upp og hrækt þeim út úr okkur, berist þær inn í munnholið. En hver er…

Ísingarveður

Þegar vestanátt er ríkjandi háttar yfirleitt svo til og nú einfalda ég hlutina dálítið, að þurrt og kalt loft berst ofan af Grænlandsjökli, og þegar það mætir hlýrra lofti og raka sem hefur gufað upp af Atlantshafinu, verður loftið rakt og óstöðugt, öldur Atlantshafsins ýfast upp og saltið úr hafinu fer upp í loftmassana þannig að vestanáttin sem kemur yfir Ísland verður rök, sölt, éljótt og óstöðug.  Þetta er auðvitað mjög einfölduð mynd af mjög flóknum náttúrulegum ferlum.
Síðan þegar djúp lægð er samfara vestanáttinni, það er mjög hvasst, þá er ekki að sökum að spyrja að mikil hætta skapast…

EuropeFlag

Rödd mín innan ESB!

Einu sinni var ég í svo mikilvægu starfi að ég var send sem fulltrúi Íslands á mikilvægan evrópskan fund í Bonn. Einu leiðbeiningarnar sem ég fékk voru að lofa engum peningum frá Íslandi, sama á hverju gengi. Ég fékk farseðilinn í hendurnar og lenti að lokum í Bonn.
Sem fulltrúi Íslands innan þessa mikilvæga Evrópusamstarfs komst ég fljótt að því að ég var í raun áheyrnarfulltrúi. Mér var í raun ekki ætlað að segja neitt, einungis að samþykkja það sem stórþjóðirnar Bretar, Þjóðverjar og Frakkar voru að ákveða. Bretarnir spurðu Þjóðverjana og Frakkana hvað þeir vildu gera á næsta ári,…

Gagnrýni hrokagikks og ást mín til píanótónlistar.

Nú ætla ég að setja mig í stellingar gagnrýnandans og eins og margir hrokafullir gagnrýnendur ætla ég að gagnrýna svið sem ég hef ekki mikið vit á, þ.e. tónlist. Ég skrifa semsagt hér sem áhugamanneskja.
Einu sinni var nefnilega svo að ég sat gjarnan við útvarpstækið og hlustaði á píanóþætti Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleikara, þar sem hann bar saman túlkun á ýmsum verkum. Það var einstök upplifun að hlusta á þessa þætti og heyra Rögnvald miðla af þekkingu sinni um píanótónlist. Ég verð að viðurkenna að ég sakna þessara þátta og vildi gjarnan heyra þá endurflutta í einhverri mynd.
En um…

Af flugferðum

Ofurtæknivæddar blikkdósir fljúga um himinhvolfið.
Ekkert hægt að nema staðar á leiðinni,
horft á skýin í gegnum lítinn glugga
og ef hann brotnar, sogastu út um hann.
Tuttugasta öldin gerði okkur öll að geimförum.
Það skiptir ekki máli hvort þú ert í flugvél eða í geimskutlunni:
“We are all astronauts” – glymur í lýðræðislegu skjávarpinu,
upppoppað glimmer sem flýgur um háloftin
í boði hinna tæknivæddu ofurguða nútímans.
Það er víst betra að festa á sig öryggisbeltið
og slaka á með gervitónlist í eyrunum og reyna að sofna.…

Af umhverfisáhrifum jarðhitavirkjana

Jarðhitavirkjanir eru að miklu leyti sambærilegar við námavinnslu. Jarðhitavatninu er dælt í miklu magni upp úr jarðhitageyminum, og þannig er sú náttúrulega hringrás sem til staðar er gerð miklu hraðari en hún hefði verið án virkjunar. Jarðhitageymirinn endurnýjast ekki, nema að affallsvatni sé dælt aftur ofan í jarðhitageyminn, en slíkt er gert í tilraunaskyni og enn nokkuð óljóst hve mikið skilar sér aftur inn í hringrás vatnsins við slíkar niðurdælingar sem vonandi munu þó ganga betur eftir því sem aukin reynsla fæst.
Affallsvatn frá jarðhita getur innihaldið ýmsa snefilmálma, eins og kadmíum, kopar og einnig eru í jarðhitavatni efni eins…

Um kadmíum

Kadmíum er efnasamband sem er til staðar í hærra magni í íslenskri náttúru en víðast hvar annarsstaðar. Ástæðan eru áhrif frá eldgosum og jarðhita, en jarðhitavatn inniheldur kadmíum og eldfjöll spúa snefilmálmum ásamt aragrúa annarra efna. Kadmíum getur verið varasamt fyrir vatnalífríki ef það er á því formi sem fer inn í gegnum frumuveggi og inn í vatnalífverur. Í þessu sambandi hefur verið rætt um að kadmíumjónir í vatni geti haft neikvæð áhrif á fiska á nanógrammaskalanum, sem er tíu í mínus níunda úr grammi. Hins vegar eru snefilmálmar oft bundnir lífrænum efnum í náttúrunni, jarðvegssýrur og húmus binda kadmíum…

Ryðgað járn.

Heilbrigðisfulltrúinn horfði með vanþóknun á málmhrúguna sem gnæfði mikilúðleg fyrir utan fyrirtækið Bílar og húdd ehf. Hann tók fram stafrænu myndavélina, stillti fókusinn, og smellti af mynd. KLIKK! Þar með var brotið staðfest.
- Hey hvað ertu eiginlega að gera, sko? hrópaði mjóróma mannsrödd og Fúsi aðaleigandi Bíla og húdda ehf. kom þjótandi út úr fyrirtækinu í bláum vinnuslopp reyrðum um mittið. Hann var með hamar í annarri hendinni. Heilbrigðisfulltrúinn teygði úr sér og gerði sig sem stærstan.
- Þessi ruslahrúga hjá þér er farin að teygja sig yfir á lóðirnar í nágrenninu og við höfum fengið kvörtun. Þú verður…

Skórnir frá Prag

Kristjáni gamla var mál. Hann sat heima hjá sér á rúmstokknum með neyðarhnappinn við hendina. Titrandi æðaberar hendurnar, sem höfðu séð marga kaðla og skipsskrokka um ævina, leituðu að símanum sem var með sérstaklega stórum tölustöfum fyrir sjóndapra eldri borgara.
Honum var mál, en hann gat ekki pissað. Hann hringdi í hjúkrunarfræðinginn sem var á dagvakt niðri í þjónustumiðstöðinni. Hún sagði honum að hringja á leigubíl og fara strax upp á slysadeild. “Ólukkans stækkaði blöðruhálskirtillinn”, hugsaði Kristján gamli, “klæddi sig með erfiðismunum í gráröndóttan jakkann, setti sloppinn sinn og rakdótið sitt í lítinn plastpoka, stakk rauðum tannburstanum annars hugar í…

fossil

Draumar Darwins

Charles Darwin er einn merkasti náttúruvísindamaður sögunnar. Kenningar hans hafa þó stundum verið mistúlkaðar eða misnotaðar af ýmsum sem ekki hafa lesið Darwin nógu vel, eins og þegar kenningin um að þeir hæfustu lifi af, hefur verið yfirfærð gagnrýnislaust yfir á mannleg samfélög (social darwinism). Einnig vaknar spurningin hvort þróun lífsins leiði alltaf til háþróaðri lífvera, eða skyldi heilabú mannsins og vitsmunir homo sapiens sapiensis geta verið honum til óþurftar? Er mannkynið e.t.v. með ofþróaða vitsmuni miðað við frumstæða eðlishvöt sína? Þessar pælingar urðu tilefni til eftirfarandi skrifa:
Draumar Darwins
 
Fugl án fjaðra,
Archeopterix,
greiptur í stein
klifrar í…