Það eru margir gírar í sjálfstæðismönnum og gírkassinn er stundum svo öflugur að þeir geta allt í senn ekið áfram, afturábak og verið í bremsu. Þessa merkilegu náttúru má lesa daglega í Morgunblaðinu og má líka sjá í örum skiptingum formanns sjálfstæðisflokksins um hvað mátti vita hvað og hvenær í aðdraganda Hrunsins, og líka í hverju orsakir þess eru fólgnar.
Einu sinni var hann viss um að orsakirnar væri að finna innanlands og enginn gat sé það fyrir. Þá stóð hann í ræðustóli á Alþingi:
Jafnvel þótt hin alþjóðlega fjármálakrísa hefði ekki komið til var ljóst að bankarnir mundu rata í ógöngur. Af kynningu á efni skýrslunnar má jafnvel ráða að þetta hafi ekki eingöngu verið ljóst snemma á árinu 2008 heldur jafnvel löngu fyrr.
sagði Bjarni Benediktsson, formaður sjálfstæðisflokksins í umræðum um skýrslu Rannsóknanefndar Alþingis, daginn sem hún var kynnt. Það var sumsé ekki fyrr en í apríl 2010 sem okkur varð ljóst, að mati Bjarna, hvenær bankarnir voru í raun búnir að vera. En það var þá …
Nú hefur nefnilega orðið breyting. Núna gátu nefnilega allir sem vildu séð hrunið fyrir í febrúar 2008. Bjarni segir í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu og á vef sjálfstæðisflokksins að það hafi verið á allra vitorði að
alvarleg staða væri uppi í alþjóðlega og um leið íslenska bankakerfinu.
Tvennt er fólgið í þessu. Annars vegar að Hrunið hafi komið utan frá. Og svo hitt sem áður enginn vissi fyrr en rannsóknarskýrslan kom út, að Hrunið væri yfirvofandi, hafi í reynd verið á vitorði allra.
Þar lá ekkert annað að baki en það sem við öllum blasti
Segir Bjarni um sölu sína á hlutabréfum í Glitni, snemma árs 2008 (sem enginn vissi annars um fyrr en frekar nýlega).
Sumsé, hann hefur skipt rækilega um gír um tvo mjög mikilvæga þætti sem varða Hrunið og eftirmál þess. Orsakirnar eru nú erlendar og allir vissu fyrirfram hvað myndi gerast.
Var það landsdómsmálið – því menn mega sín víst lítils í alþjóðlegu fjármálagjörningaverðri – eða kannski grein Hallgíms Helgasonar um Vafningsmálið sem fékk hann skipta um gír?
Svo vaknar líka spurningin: Hvort á að taka meira mark á Bjarna Benediktssyni í ræðustól á Alþingi, eða á síðum Morgunblaðsins og vef flokksins?
