Saklausir

Lárus Blöndal, lögmaður og einn eigenda lögfræðistofunnar Juris, hefur bent mér á að í fréttaskýringu minni um Árvakur og eigendur útgáfu Morgunblaðsins og mbl.is er villa.

Árvakur, sem gefur út Morgunblaðið og mbl.is, er að 99% í eigu félags sem heitir Þórsmörk. Legalis sf. á 3,21% hlut í Þórsmörk. Stofurekstur í nafni Legalis hefur runnið inn í stofuna Juris, en Legalis mun eingöngu vera í eigu Sigurbjörns Magnússonar, lögmanns, sem eitt sinn var framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðisflokksins. Hann á einnig hlut í lögfræðistofunni Juris í samtarfi við ýmsa ágæta lögmenn sem nefndir eru í greininni, en samstarfsmenn Sigurbjörns eru semsagt saklausir af því að eiga hlut í útgáfu Morgunblaðsins.

Rétt er að taka fram að þetta hefur hvorki áhrif á meginefni og niðurstöður fréttaskýringarinnar né raskar öðrum þáttum hennar að neinu leyti.

Ég hef gert viðeigandi breytingar á greininni. Fréttaskýringuna, sem er í tveimur hlutum, má lesa hér og hér.