Ég verð nú að segja það að mér ofbauð í dag þegar ég fór að sækja farþega í Leifstöð í dag.
Það er með ólíkindum virðingarleysi fólks gagnvart umferðaskiltum,virðingarleysi gagnvart sinni eiginn stétt sem eru bílstjórar. Það er eins og ríki villta vestrið þarna við Leifstöð. Menn komast upp með allt því að lögreglan sést ekki,því að hún getur nú lítið gert því að Sandgerðisbær hirðir ekkert um að gera lögreglusamþykkt um stæðismál þarna uppfrá ,hirðir bara peninga í formi skatts.
Reynið nú bæjarstjórnarmenn að taka hendur upp úr vösum og farið að hunskast til að gera eitthvað í samþykktum svo að lögreglan geti farið að vinna sína vinnu og stemma stigu við villta vestrinu.
Svo er nú allt önnur ella hvernig staðið er að gerð bílastæða við Leifstöð. Ekki virðist mega hrófla við þessum grjóthrúgum sem eiga að vera listaverk sem aftur skerða mjög möguleika á því að laga bílastæðismál þarna uppfrá. Það er ekki nóg að fá fjölgunn farþega hvert einasta ár ,það þarf líka að hugsa um hvernig á að taka á móti þessum farþegum á sem besta máta sem gengur hratt og örugglega fyrir sig.
Til þess þarf að fjölga rútustæðum og takmarka einkabílinn næst stöðinni.
Mér skilst að ekki megi taka hluta af grjótgarðinum sem liggur hringinn í kringum bílastæðinn það er annað hvort ekkert eða allur ,þá skulu menn fara í það að fjarlæga hann til þess að hægt sé að búa til stæði fyrir bíla og rútur. Það er betra að byrja fyrr en seinna því að allt útlit er fyrir að um gífurlega fjölgunn ferðamanna verði til landsins í ár oft var nauðsyn en nú er þörf.

















