1334608311857

Áttatíu: Önnur birtingarmynd skáldsögu

Sjötíuogníu: Róttækni og öfgar

Öll hugtök eiga sér fleiri en eina „raunverulega“ merkingu. Það sem þú segir er ekki endilega alltaf það sama og aðrir heyra – og það sem skiptir máli eru yfirleitt ekki orðin sjálf heldur samhengið sem þau falla í. Samskipti eru samkomulag – ég reyni að segja eitthvað svo að þú skiljir og þú reynir [...]

12030073

Sjötíuogátta: Tralli og vettlingurinn sem sprakk

Ég man ekki hvað bókin heitir – þetta er að minnir mig upprunalega úkraínskt ævintýri sem ég las á sænsku fyrir Aram þegar hann var mjög lítill. Og fjallar um vettling sem lítill drengur týnir úti í skógi. Það er skítaveður og mús nokkur leitar skjóls í vettlingnum. Síðan kemur héri og fær líka að [...]

hildurstrid

Sjötíuogsjö: Það er ekki að fara að hefjast neitt stríð

Þetta rann upp fyrir mér í dag einhvern tíma þar sem ég þrammaði í gegnum frostið á leiðinni upp í háskóla, þennan þarna háskóla sem fann upp irkið, og ég ætti kannski að taka það fram að ég meina ekkert sérstakt með þessu. En sem sagt, þetta ljóð, ég fékk dálítið bágt fyrir það frá [...]

Sjötiuogsex: Ég rifja upp eitt og annað um irkið

Ég fékk fyrsta lestur í hús á helginni og reif upp bókina strax á mánudag, eftir dálitlar bollaleggingar sunnudag og aðfararnótt mánudags. Í nýjum skrifum skaut irkið upp kollinum. IRC spjall á netinu. 1997. Og ég sat sem sagt á bókasafninu í Ouluháskóla og mundi ekki eitthvað um irkið. Skrifa tölvulaus með penna og slæ [...]

Sjötíuogfimm: „Í stríði útdeilir maður orðum“

Á síðustu helgi réðst ungur maður inn á pizzeriu í verslunarmiðstöð hér í Oulu og skaut á mennina þrjá sem voru þar inni og síðast sjálfan sig. Einn maðurinn dó strax, annar særðist alvarlega en er ennþá lífs og sá þriðji slapp út ómeiddur. Árásarmaðurinn lést af sárum sínum í vikunni. Mennirnir þrír voru allir [...]

Sjötíuogfjórir: Hvenær kemur eiginlega að okkur?

I – Laun listamanna Það er fátt í heiminum jafn leiðinlegt og að misskilja aðra, nema ef vera skyldi að misskiljast ítrekað sjálfur. Þess vegna er ástæða til þess að endurtaka þetta, svo allir heyri, einu sinni enn: enginn þeirra sem vill endurskoða hina sífellt umfangsmeiri höfundarréttarlöggjöf; löggjöf sem stangast á við skynsemi, meðalhóf og [...]

Sjötíuogþrír: Málfrelsi, Snorri og Múhameð

Þetta er í raun einfalt mál, þótt augljóslega sé hægt að hafa um það ótal orð, hvert öðru mikilvægara: annað hvort ríkir tjáningarfrelsi eða ekki. Ef maður er dæmdur fyrir það sem hann segir verður dómurinn að byggja á því að raunverulegur glæpur hafi verið framin, annar en sá að tjá sig upphátt: til dæmis [...]

Sjötíuogtveir: Rúm til að hugsa

Ókosturinn við Facebook er að þar gefst sjaldan næði til að hugsa. Þar er sjaldan rúm fyrir samræðu – ég er ekki viss um að það sé fólkinu að kenna, sjálfsagt sjaldnast, það meina allir vel og fæstir eru vitlausir. En formið er svo hratt. Hugsuninni er ýtt áfram, henni er hrint – maður getur [...]

Sjötíuogeitt: Fáeinar myndir úr hverfinu mínu í Oulu

Sjötíuogeitt: Fáeinar myndir úr hverfinu mínu í Oulu

Þetta er hér fyrir aftan hús. Áletrunin þýðir: Fjölmenningin er hættuleg börnum þínum og barnabörnum. Samtökin heita Patriootti vastarintaliike – Andspyrnuhreyfing föðurlandsvina. Þetta kunnuglega tákn er undir brúnni á leiðinni á leikskólann. Önnur skilaboð frá samtökunum Patriotti. Hér stendur: Berjumst á móti! Við höfum líka fengið skilaboð frá þessum samtökum í póstkassann og svipaðir límmiðar [...]