Jæja, þá er tímabært að fara að loka tölvunni og snúa sér að matseldinni. Ég óska lesendum mínum öllum gleðilegra jóla og næðis yfir hátíðarnar með bestu þökkum fyrir það sem við höfum átt saman að sælda í bloggheimum á árinu sem er að líða. Læt fljóta með jólaljóð sem ég orti fyrir nokkrum árum í heiðskíru og fallegu veðri á jólanótt.
Jólanótt
Norðurljósa litatraf
liðast hægt um myrkrahvel,
lýsir himinn, land og haf,
litkar hjarn og frosinn mel.
Rauðbleik merlar mánasigð
á myrkum sæ um þögla nótt.
Langt í fjarska bjarmar byggð
- borgarljósin tindra rótt.
En yfir raflýst borgarból
– á bak við heimsins ljósadýrð -
ber sín helgu boð um jól
björt en þögul nætursól,
við skörðum mána skín í kyrrð
skærum loga úr órafirrð
er lúnum mönnum lýsti þrem
langan veg til Betlehem.

