andskotann er mér skítsama um forsetakosningar, ég vil réttlæti!

(Nýársheit: Vera meira eins og Lisbeth Salander, ganga bara í málin!)

Á árinu sem leið var ég dæmd til að greiða smotteríissekt. Ég var ákærð fyrir að vera næstum eins vond og Zalashenko, en dæmd fyrir pínkulítið ofbeldi. Ég er þriðja flokks smákrimmi.

Ástæðan fyrir ákærum og svo dómi er sú að ég gólaði mikið niðrí bæ einn veturinn, aðeins í Seðlabankanum og svo einu sinni inní Alþingishúsinu.

Ég hékk niðrí bæ aðallega vegna þess að mig langaði að hefna fyrir Írak. Það var helsta ástæðan. (Og svo töluvert af hefðbundnu kommahatri á borgaralegu íhaldi og auðvitað slatti af alþjóðahygginni andúð á nýfrjálshyggjunni og arðráni almennt, ‘veröldin er ekki til sölu’ og svoleiðis.)

Ég er búin að hugsa mikið um Írak undanfarinn mánuð eða svo. (Kannski vegna jólanna, þá verður maður svo sentimental: ætli arabarnir viti að jólin koma, eða eru þeir kannski jafn fávísir og aumingja fátæklingarnir undir Afríkusólinni?)

Í desember heyrði ég í konu í útvarpinu, hún var að segja frá ýmsum jólamyndum, ma. Love actually. Þessi kona sagði að í þeirri mynd kæmi fram sterk gagnrýni á það hvernig Bandaríkin hefðu beitt aflsmunum til að pína Bretland með til Írak. ‘Ha?’ æpti ég á útvarpið. ‘Hefurðu aldrei heyrt um skýrsluna? Þó eitthvað gerist í bíó er það ekki endilega satt! Hvaða andskotans rugl! Bretar eru helvítis lygarar og arabamorðingjar!’ Ég komst í sannkallað jólaskap við að hlusta á þáttinn og var hressandi félagsskapur það sem eftir lifði dags.

Svo er ég búin að hugsa um Írak afþví að stríðið þar er búið og þá er vert að rifja upp hitt og þetta. Hér eru allar lygarnar í tímaröð, æsir upp PTSD-ið.
Er til eitthvað svipað um Davíð og Halldór?

Og hér skrifar William Blum:

…how the Americans, beginning in 1991, bombed for 12 years, with one dubious excuse or another; then invaded, then occupied, overthrew the government, tortured without inhibition, killed wantonly, … how the people of that unhappy land lost everything — their homes, their schools, their electricity, their clean water, their environment, their neighborhoods, their mosques, their archaeology, their jobs, their careers, their professionals, their state-run enterprises, their physical health, their mental health, their health care, their welfare state, their women’s rights, their religious tolerance, their safety, their security, their children, their parents, their past, their present, their future, their lives … More than half the population either dead, wounded, traumatized, in prison, internally displaced, or in foreign exile … The air, soil, water, blood, and genes drenched with depleted uranium … the most awful birth defects … unexploded cluster bombs lying anywhere in wait for children to pick them up … a river of blood running alongside the Euphrates and Tigris … through a country that may never be put back together again.

Þannig að ég segi, eins og GWB: BRING IT ON! Landsdóm á þá alla, Geir, Davíð, Halldór og svo framvegis! Og stríðsglæpadóm líka!

Hættum við helvítis forsetakjörið, og verðum í staðin landið þar sem stríðsglæpamönnum er ekki óhætt. Í það er tíma okkar sko vel varið.
Já, það er glæpur að vera á mála hjá auðvaldinu en guð minn góður, er ekki glæpur að gera innrás og drepa fólk?

Ég legg einnig til að Sjálfstæðisflokkurinn verði lagður niður og vitna tillögunni til stuðnings í Howard Zinn:

If a bomb is deliberately dropped on a house or a vehicle on the grounds that a ‘suspected terrorist’ is inside, the resulting deaths of women and children may not be intentional. But neither are they accidental. The proper description is ‘inevitable’. So if an action will inevitably kill innocent people, it is as immoral as a deliberate attack on civilians.

Og Harold Pinter:

The invasion of Iraq was a bandit act, an act of blatant state terrorism, demonstrating absolute contempt for the concept of international law. The invasion was an arbitrary military action inspired by a series of lies upon lies and gross manipulation of the media and therefore of the public; an act intended to consolidate American military and economic control of the Middle East masquerading – as a last resort – all other justifications having failed to justify themselves – as liberation. A formidable assertion of military force responsible for the death and mutilation of thousands and thousands of innocent people.

We have brought torture, cluster bombs, depleted uranium, innumerable acts of random murder, misery, degradation and death to the Iraqi people and call it ‘bringing freedom and democracy to the Middle East’.

How many people do you have to kill before you qualify to be described as a mass murderer and a war criminal? One hundred thousand? More than enough, I would have thought. Therefore it is just that Bush and Blair be arraigned before the International Criminal Court of Justice.

Að lokum, lag tileinkað ykkur sem finnst ok að mögulegt sé að láta yfirstéttina svara til saka. Gleðilegt nýtt ár allskonar elda.

 

 

 

Þessi færsla var skráð í Uncategorized.