má auðvaldið leggja grikkland í rúst? stendur öllum á sama um almenning þar?

Frá Grikklandi berst ákall:

The masks have completely fallen… IMF, EU officials and “our” government (the non-elected, ex-banker new prime minister with his 3 political allies, main responsible for this crisis  & ruling for the last 40 years) has decided yesterday for a 3rd even harder, more destructive package of austerity measures which will turn Greece to the country it was just after the 2nd World War…

The new salaries after this agreement will reach around 350 euros in a country with an increased living cost (and one among the countries with the highest food, fuel, services prices)… The cuts in the last 2 years have reached more than 50% of the average salary income, while Greek banks are getting millions of euros and big corporations are paying ever less taxes… Debt, on the other hand is getting ever bigger as the economy is paralyzed… A dead-end policy…

In a country of 10 million 4.000 people loose their jobs EVERY DAY, the homeless in the streets of Athens have increased rapidly the last 5-6 months. Homeless people who until recently had a house and a normal life…

We need your solidarity.
Spread the news, don’t believe in the corporate media.
There is a call for 48hrs general strike and protest for the next 3 days.
Greece is just the experiment of an economical model that will be used for all of us.

Áðurnefndur fyrrum aðstoðarbankastjóri evrópska seðlabankans (myndin hér að ofan er ekki af honum) og núverandi forsætisráðherra Grikklands, Lúkas Papademos, segir að nú verði að færa sársaukafullar fórnir, mæta öllum kröfum AGS, ESB, til að endurheimta trú markaðarins ella að Grikkland, heimkynni næstum því 11 milljóna barna, kvenna og manna, verði lagt í rúst.

Hvað þýðir frasinn ‘sársaukafullar fórnir’?

Td. 20% atvinnuleysi. Hræðilega fjölgun þeirra sem ekki eiga heimili, gríska rétttrúnaðarkirkjan þarf nú að fæða 250.000 á degi hverjum. Uppsagnahrinu á starfsmönnum sveitarfélaga og ríkisins (hér segir frá því að til viðbótar við þau 200.000 sem þegar hafa misst vinnuna eigi enn eftir að reka 150.000-manneskjur eins og mig og þig, það er búið að setja sérstök glæný lög sem leyfa allar þessar uppsagnir á ‘afætunum’, stundum er svoleiðis kallað fasískar árásir á launþega, en bara ekki núna, bara ekki þegar ESB er sögupersóna), og þessvegna grundvallarbreytingar á því hvaða þjónustu almenningi er boðið uppá. Grunvallarbreytingu á eðli kerfisins.

Hér hafa margir talað eins og þetta væri sjálfsögð krafa annara ríkja sambandsins og raunverulega væru ‘aðgerðirnar’ Grikkjum fyrir bestu. Nú loksins myndu þeir kannski hætta að vera latir skattsvikarar sem stælu hagvexti frá Þjóðverjum. (Sem aftur á móti eru nokkurskonar fórnarlömb suðrænna íbúa álfunnar. Næstum eins og í bók eftir Enid Blyton.) Sumir myndu kalla þetta svívirðilegan áróður, jafnvel siðlausan, aðrir lögmál nútímans sem augljóst væri að lifa yrði eftir og við. Og þessir hræðilegu anarkistar og ofbeldismenn og brennuvargar væru glæponar sem taka þyrfti fast á með hanskaklæddum höndum. (Eins og að hér tali manneskjur sem ekkert þekki til sögu Evrópu á tuttugustu öldinni…)

Ætli narratívið um Grikkland breytist núna? Eða eru þau heillum horfin? Eftir hverju er eiginlega verið að sækjast? Ég fórna höndum og æpi: Er í lagi að kremja heila þjóð einu sinni enn?

(Á öðrum og léttúðugri nótum, og ég vona að það verði tekið til marks um hversu ómálefnaleg ég sé og lík Mogganum í lágkúru og siðleysi: Einu sinni hafði ég áhyggjur af því hversu erfitt það yrði að sannfæra Íslendinga um að segja nei við ESB. Ég hafði áhyggjur af því að vegna þess hve snartjúlluð hagstjórn er hér og hve undarlega mannað efsta lag ríkisapparatsins er, myndi fólk í neyð sinni leita til Evrópusambandsins, á þeim forsendum að flest hlyti að vera betra en það sem er í boði hér. (Guð minn góður, þetta eru máttug rök.) En nú hef ég engar áhyggjur af því lengur, vegna þess sem byrjar á I og aldrei má nefna í siðaðra manna félagsskap og þessarar geðveiki sem nú dynur á bræðrum okkar og systrum í baráttunni og mun vara í mörg ókomin ár, er ekki fræðilegur möguleiki á því að Íslendingar segi já við ESB. Til þess þyrfti að eyða 911xicesave af peningum, og því tímir enginn í svona dýrtíð. (Við förum ekki inn nema þeir geti notað I-ið til að pína okkur.))

Hér eru svo tvær áhugaverðar greinar um ástandið í Grikklandi, önnur af Counterpunch, The Troika blackmails Greece, og hin af World Socialist Web Site, The looting of the Greek working class.

 

Þessi færsla var skráð í Uncategorized.